The Descendants (2012)

| 20. Jan, 2012 | 0 Comments

Matt King er örvæntingafullur að ná fjölskyldunni aftur saman eftir að konan hans fer í dá eftir bátaslys. Þar sem Matt hefur verið í aukahlutverki í uppeldi dætra sinna hefur hann ekki hugmynd um hvernig á að ná til þeirra. Til að kóróna þennan erfiða tíma þarf hann að taka erfiða ákvörðun um sölu landskika sem er í eigu fjölskyldu hans og milljarða virði og ekki skána hlutirnir þegar hann kemst að því að konan hans hafði átt í ástarsambandi við annan mann.

The Descendants er fjölskyldugaman/drama þar sem George Clooney fer með aðalhlutverkið. Myndin er skrifuð og leikstýrð af Alexander Payne og má segja að hann se að snúa aftur eftir sjö ára fjarveru. Payne er maðurinn á bakvið myndir á borð við Election, Sideways og About Schmidt. Það er óhætt að segja að Payne viti hvað hann er að gera því að þad er ekkert hægt ad setja út á myndina.

Það er mjög skemmtilegt hvernig Hawaii er sýnd í allt öðru ljósi en maður er vanur. Öll hversdagsleg vandamál nútímasamfélags eiga einnig við þennan litla eyjaklasa og það er ekki alltaf bara sól og blíða eins og allir halda. Persónurnar í myndinni eru allar mjög raunverulegar og ættu flestallir að ná að tengjast þeim á einhvern hátt.

Eins og áður kom fram fer Clooney með aðalhlutverkið í myndinni sem Matt King og er hann einstaklega góður og er virkilega gaman að sjá hann í hlutverki sem passar við aldur hans. Hann leikur miðaldra karlmann sem gengur í polobolum, sandölum og á við raunveruleg vandamál að stríða. Það er magnað hvað hann velur góð verkefni. Clooney fór heim með Golden Globe og er alveg líklegur til að vera keppinautur um Óskarsverðlaun árið 2012. Gaman var að horfa á þær Shailene Woodley og Amara Miller en þær leika dætur Clooney í myndinni og lögðu þær svo sannarlega sitt að mörkum í þessa mynd. Woodley hefur þónokkra reynslu í bransanum og er nafn til að muna en Miller er þreytir hér frumraun sína og verður einnig gaman að sjá hvað verður úr henni i framtíðinni. Einnig ber að nefna Judy Greer en hún fer með lítið hlutverk í myndinni en skilar samt frábærum leik.

Yfir höfuð er myndin lágstemmd en samt sem áður fær maður sjálfan sig til að hlæja í alvarlegum senum í myndinni þegar hlutirnir verða of vandræðalegir. Það er einkenni Payne að ná sem mestu úr litlu og er það sem er svo gott við þessa mynd. Þrátt fyrir að ekki mikið sé að gerast er maður samt dáleiddur og vill sjá meira.

Niðurstaða: The Descendants er einstaklega vel gerð mynd með frábærum leikurum, hún fær mann til að finna til, gráta, hlæja og fara út úr kvikmyndahúsinu með bros á vör, mynd sem enginn ætti að láta fara framhjá sér.

★★★★½

Tags: , , , ,

Category: Drama

Leave a Reply

Switch to our mobile site