Myndir úr Skyfall, nýjustu Bond myndinni

| 5. Feb, 2012 | 0 Comments

Fyrstu myndir eru byrjaðar að birtast úr Skyfall, 23. Bond myndinni, sem frumsýnd verður víðsvegar um heiminn í nóvember næstkomandi.

Augljóst er af myndunum að dæma, sem teknar eru af settinu, að Bond verður myrkari, sjúskaðri og flottari en nokkru sinni fyrr. Daniel Craig er sem fyrr í hlutverki njósnarans gamalreynda og illmennið er í höndum Spánverjans Javier Bardem. Það er svo Óskarsverðlaunaleikstjórinn Sam Mendes (American Beauty, Road to Perdition) sem heldur um taumana. Gaman verður að sjá útkomuna en miðað við þessar fyrstu myndir og þessi stóru nöfn má gera ráð fyrir að Bond verði ansi rosalegur í þetta skiptið. BÍÓFilman bíður spennt.

- Róbert Michelsen

Tags: , ,

Category: Fréttir

Leave a Reply

Switch to our mobile site