Viltu fara ódýrt í bíó?

| 16. Apr, 2011 | 1 Comment

Að fara í bíó er athöfn sem flestir stunda reglulega, ef ekki vikulega. Það er ekkert betra en að skella sér í kvikmyndahús með góðum félagsskap og sjá mynd sem þú ert búinn að bíða spenntur eftir.  Eini gallinn við það að fara reglulega í bíó er kostnaðurinn sem fer í ferðina. Miðaverðið eitt og sér er á bilinu 1.100-1.350kr(dýrara er að fara á þrívíddarmyndir) en meirihluta mynda í kvikmyndahúsum í dag eru í þrívídd. Síðan kostar miðstærð af popp og kók tæpar 800kr. og ég tala nú ekki um ef að maður fær sér sælgætispoka í hléinu sem kostar á bilinu 300-400kr. Þá er heildarkostnaður fyrir einn fullorðinn einstakling kominn upp í 2.550kr. sem er allt of mikið að mínu mati. Auðvitað er hægt að minnka kostnaðinn með því að sleppa því að fá sér popp og kók en mér finnst það draga úr skemmtuninni.

Ein góð lausn á þessu var gamla góða þriðjudagsbíóið sem var tekið upp fyrir nokkrum árum, en það þýðir mikil aðsókn, troðningur og það þarf að mæta hálftíma fyrr til að ná skikkanlegum sætum. Frekar mikil fyrirhöfn fyrir að spara sér smá pening og satt að segja varla þess virði að standa í öllu þessu veseni, þar sem þriðjudagsbíóið er búið að hækka úr 500kr. í 700-750kr. Ég ætla hinsvegar að gefa ykkur nokkur ráð um hvernig er hægt að spara og fá meira fyrir peninginn.

Það er í raun mjög auðvelt að komast ódýrt í bíó en það þarf smá undirbúningsvinnu, sem ég ætla að spara ykkur. Það er ekki mikið um afslætti í kvikmyndahúsum, þar sem þau eru ekki að hala inn peningum eins og til dæmis olíufyrirtæki, en eina leiðin til þess að fá þessa afslætti er í gegnum bankaþjónustu. Það er ekki bara einn banki sem býður upp á þessa afslætti, heldur eru þeir allir með einhver kjör sem hagnast fólki mismunandi. Það er ástæða fyrir því að ég er með fimm mismunandi greiðslukort.

Byrjum á Arionbanka, en þar er hægt að fá annað hvort debet-kredit eða kredit kort sem kallast „Kortið“ og er með fín kjör hjá Sambíóunum, þar sem það kostar einungis 850kr. á venjulega mynd og 1050kr. að sjá mynd í þrívídd(þetta er að vísu enginn brjálaður díll, þar sem það kostar 4000kr. árlega að vera með kortið, en ef þú ferð þrettán sinnum í bíó yfir árið, þá borgar kortið sig sjálft)

Næst er það Íslandsbanki sem býður öllum þeim sem nota „Stúdentakort“ Íslandsbanka í kvikmyndahúsum Senu (Smárabíó, Háskólabíó og Borgarbíó) að borga fyrir miðstærð af popp og kók og fá stóra í staðinn af hvoru tveggja(þetta er ekki eins góður díll og hjá Arionbanka en samt er þetta ekki slæmt, gallinn er að einnig þarf að borga 4000kr. í ársgjald fyrir þetta kort)

Landsbankinn býður námsmönnum að borga fyrir einn miða og fá annan frían mánudaga til fimmtudaga í kvikmyndahúsum Senu, og er þetta mjög flott tilboð þar sem þú þarft ekki að borga til að fá námsmannakort. Eini gallinn er að þetta gildir ekki um helgar, en engu að síður besta tilboðið hingað til.

Að lokum er það BYR sem býður námsmönnum upp á tveir fyrir einn á mánudögum í Sambíóin og 20% afslátt af almennu miðaverði alla aðra daga. Þannig aðra daga kostar almennt miðaverð 920kr. og 1080kr. á þrívíddarmyndir. Að auki þá kostar ekkert að vera með kort hjá BYR þannig þar sparast helling af peningum eða „böns af monnís“ eins og þeir orða það „skemmtilega.“

Ef litið er á heildina þá er mjög auðvelt að reikna út hvar er hægt að spara mest. Sniðugast er að fá sér kort hjá bæði Landsbankanum og BYR, þar sem þú borgar ekki neitt fyrir að fá kortin og þar ertu með afslátt í aðal kvikmyndahúsin(Sambíóin og Senu). Hin kortin eru óþörf þar sem þú ert að fá miklu betri kjör með þessi tvö kort saman. Að vísu ef þú ert með kort frá Íslandsbanka út af einhverjum öðrum ástæðum, þá er um að gera að nýta sér það. Annars hef ég ekki meira að segja um málið.

-BÍÓFilman.is

 

Category: Blogg

Comments (1)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Bankarnir eru að vísu ekki eina leiðin til að fá ódýrara í bíóin eins og þú segir, en kannski sniðugasta (ef þú nennir að vera með fimm kort).

    Það sem ég man eftir í augnablikinu er 2 fyrir 1 alla fimmtudaga í Sambíóin Kringlunni og svo er Græna Ljósið með póstlista þar sem þeir bjóða yfirleitt meðlimum 2 fyrir 1 á mynd frumsýningarhelgi myndarinnar.

    Og já, díllinn hjá Íslandsbanka er ömurlegur.

Leave a Reply

Switch to our mobile site