The Adventures of Tintin: The Secret of the Unicorn (2011)

| 28. Oct, 2011 | 0 Comments

Blaðamaðurinn Tinni og Kolbeinn kapteinn leggja upp í leit að fjársjóði sem á að hafa sokkið með skipi forföðurs Kolbeins, Einhyrningnum. Vandamál þeirra félaga er að fleiri eru líka að leita að fjársjóðnum, menn sem svífast einskis til að finna það á undan Tinna og Kolbeini.

Fáar myndir hafa vakið jafn mikla tilhlökkun hjá mér síðustu ár og þessi mynd. Og ég er ekki einu sinni Tinna-aðdáandi. Ástæðan er nokkuð einföld, Steven Spielberg leikstýrir, Peter Jackson framleiðir og fullt af flottum leikurum. Auk þess var myndin unnin með „hreyfigreiningu“ (e. motion capture) sem ég hef haft gaman af að fylgjast með síðustu ár og töframennirnir í Weta (Avatar, Rise of the Apes, King Kong) sáu um tæknibrellur.

Í málsgreininni hér að ofan skiptir minnsti punkturinn mestu máli. Þrátt fyrir öllu stóru nöfnin sem tengjast myndinni, og ættu að gulltryggja hana, hafði ég lítið gaman af henni. Ég er nefnilega ekki Tinna-aðdáandi. Eins og líklega flestir þekki ég til Tinna og félaga, sem barn las ég margar myndasagnanna og sá einhverjar teiknimyndir, en ég hef ekki komið nálægt Tinna í yfir tíu ár.

Eins og ég upplifði myndina er hún gerð fyrir a) Tinna-aðdáendur með fortíðarfíkn og b) börn. Margar tilvitnanir eru held ég beinar tilvísanir í bækurnar, ef ekki þá a.m.k. mjög í stíl við þær, bæði á íslensku og ensku. Ég virði það og sérstaklega að sýna þennan metnað í þýðingum. Að öðru leyti fannst mér myndin of barnaleg til að ég gæti notið hennar til fulls (hér er það líklega lykilatriði að ég er ekki Tinna aðdáandi).

Það skiptir ekki máli hvar þú setur puttann á myndina, það er virkilega fagmannlega staðið að öllu klabbinu, enda ekki við öðru að búast frá Spielberg. Handritið er vel skrifað, sagan er þétt og það er ekki dauðan punkt að finna í sögunni þó að hægt hefði verið að velja betri bækur til að byggja myndina á. Sögunni er væntanlega breytt eitthvað fyrir hvíta tjaldið en hér eru t.d. Tinni og Kolbeinn að kynnast. Tæknibrellur, sem sagt öll myndin, eru flottar. Það er ekki feilspor að sjá alla myndina. Umhverfi og persónur eru virkilega vel gerð. Útlitslega séð er myndin algjör veisla fyrir augað.

Mér finnst alltaf jafn furðulegt að tala um leik hjá einhverjum leikara þegar hann er tölvuteiknaður. Jamie Bell leikur Tinna, Daniel Craig leikur Sakkarín, Simon Pegg og Nick Frost leika Skafta og Skapta og Andy Serkis leikur Kolbein kaptein. Það verður ekki annað sagt en að allir leikararnir eigni sér hlutverk sín. Andy Serkis er fremstur meðal jafningja en hann er ókrýndur konungur hreyfigreiningarinnar. Áður hefur hann leikið King Kong, Gollum í LOTR og Ceasar í Rise of the Apes.

The Adventures of Tintin: The Secret of the Unicorn er því miður ekki það meistaraverk sem ég var búinn að búa mig undir. Öll umgjörð og vinna tengd myndinni er góð en það gerir þessa Tinna-mynd að stórfenglega flottu miðjumoði í stað þess að vera ómerkileg í alla staði. Því miður.

★★★☆☆

Tags: , , , , ,

Category: Ævintýri

Leave a Reply

Switch to our mobile site