Svartur á leik fær stiklu
Fréttasíðan vísir.is birti í dag fyrstir og einir fjölmiðla, stiklu úr íslensku kvikmyndinni Svartur á leik. Myndin er byggð á vinsælli bók Stefáns Mána og fjallar um dóp, kynlíf og ofbeldi í undirheimum Reykjavíkur. Miðað við stikluna þá má búast við grjótharðri ræmu þar sem ekkert er dregið undan til að sýna hversu harðir undirheimarnir eru í hinni friðsælu Reykjavík.
Með aðalhlutverk fara Þorvaldur Davíð Kristjánsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Damon Younger, María Birta Bjarnadóttir, Egill “Gillz” Einarsson og Vignir Rafn Valþórsson. Leikstjóri er Óskar Þór Axelsson. Tökur stóðu yfir í 5 vikur í vor og útkoman er væntanleg í kvikmyndahús í mars 2012.
Til að sjá stikluna, smellið hér til að fara á vísi.is.
- Róbert Michelsen
Category: Uncategorized




