Rise of the Planet of the Apes (2011)

| 5. Aug, 2011 | 3 Comments

Í San Francisco leitar vísindamaður, Will, að lækningu gegn Alzheimer sjúkdóminum með tilraunum á simpönsum. Aparnir sýna greinileg merki um aukið gáfnafar og þegar Ceaser, api sem Will ól upp utan rannsóknarstofunnar, er settur í dýraathvarf verður ekki aftur snúið. Hann hefur ákveðið sig, það verður stríð – apar á móti mönnum.

Rise of the Planet of the Apes er eins konar endurgerð á myndinni Conquest of the Planet of the Apes frá 1972 (núna 40 árum eftir að fyrsta myndin var gefin út eru þeir ennþá með þessi spauglega óþjálu nöfn!). Þær eiga sitthvað sameiginlegt en Rise of the Planet of the Apes er nógu ólík til að ég flokki hana ekki undir endurgerð. Ekki eru þær bara ólíkar efnislega séð því Rise er margfalt betri.

Hægt væri að semja margar útgáfur af forsögu Apaplánetunnar; hvernig aparnir náðu yfirtökum. Leiðin sem handritshöfundarnir fara hér er mjög góð, hún er trúverðug og áhugaverð. Ceasar er forvitnileg persóna sem maður tengist vel, sama hvort hann sé að leika sér sem apaungi eða þegar hann hefur byltinguna. Handritið er sterkt þótt það sé ekki fullkomið. Það vantar svolítið upp á persónurnar en yfirhöfuð stenst handritið gæðakröfur með stæl, það kom mér á óvart m.v. gæði síðustu mynda. Það er spennandi, skemmtilegt og vekur upp siðferðislegar spurningar. Tæknibrellurnar eru stórkostlegar, það er varla að sjá að þarna séu tölvugerðir apar á ferð.

James Franco, aðalmaðurinn í Hollywood um þessar myndir, og Andy Serkis fara með aðalhlutverk. Andy leikur apann Ceasar en kauði hefur næga reynslu af því að vinna í „hreyfigreiningar“ (e. motion-capture) búningi, því áður hefur hann leikið Gollum í Lord of the Rings þríleiknum og titilpersónuna í King Kong. James Franco var alveg fínn en Andy Serkis er senuþjófurinn. Hann varla talar í myndinni og er tölvugerður en samt slær hann út öllum hinum Hollywood leikurunum. Frida Pinto og John Lithgow voru svo í auka-aðalhlutverkum. Tom Felton, Draco Malfoy úr Harry Potter, er hér í fyrstu stóru myndinni sinni fyrir utan Harry Potter. Hann hafði úr nægu að moða í þessu hlutverki en mér fannst hann vannýta tækifærið.

Rise of the Planet of the Apes er ein besta mynd sumarsins og verður mér líklega ofarlega í huga þegar árið verður gert upp.

★★★★☆

Tags: , , , , , ,

Category: Drama, Spennu, Vísindaskáldsaga

Comments (3)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Ég vona að þessi mynd sé betri en titillinn. Ekki að það sé erfitt.

  2. Hlynur Jón says:

    Djöfull ætla ég EKKI að sjá þessa mynd!

Leave a Reply

Switch to our mobile site