Rio (2011)
Fuglinn Blu endar í Minnesota í Bandaríkjunum eftir að smyglarar týna honum á leið frá Rio de Janeiro. 15 árum síðar fer eigandi Blu með hann til Rio til að varðveita tegundina, en Blu er síðasti karlfuglinn af sinni tegund. Honum er rænt aftur af smyglurum ásamt kvenfuglinum, Jewel, sem hann átti að makast við og saman lenda þau í ótrúlegu ævintýri meðan kjötkveðjuhátíðin stendur yfir.
Ég hafði ekki beðið með eftirvæntingu að sjá Rio og voru ástæðurnar nokkrar. T.d. hefur leikstjórinn, Carlos Saldanha, bara leikstýrt Ice Age þrennunni og Robots en fyrir utan Ice Age 1 heilluðu þær mig ekki. Handritshöfundurinn, Don Rhymer, hefur á síðustu ellefu árum skrifað handritin að The Santa Claus 2, Deck the Halls, Surf‘s Up og kom að öllum þremur Big Momma‘s House ásamt fleirum verri myndum.
Það fór líka eins og ég átti von á. Myndin er heldur óspennandi í byrjun (þegar ég segi í byrjun, meina ég ríflega klukkutími eða 2/3 hlutar myndarinnar). Fjölmargar persónur eru kynntar en í aðalhlutverkum eru Blu og Jewel. Blu er langskemmtilegasta persóna myndarinnar, talsettur snilldarlega af Jesse Eisenberg, og kemur þér oft til að hlæja. Á móti er Jewel leiðinlegasta persónan, enda ekkert aðlaðandi við hana. Það er ástar/haturs samband milli þeirra og þó handritshöfundurinn reyni sitt besta til að gera hana viðkunnanlega, þá kemur Jewel bara út sem leiðinleg tík. Allavega svona framan af. Flestar af aukapersónunum eru skemmtilegar og fyndnar, þó það sé óvenjumikið um misheppnaða brandara.
Persónurnar eru vel heppnaðar miðað við hversu lélegt handritið er. Myndin er stefnulaus og hefur engan stíl. Þetta er ekki söngvamynd, en engu að síður hindrar það það ekki að þrjú lög brjótast skyndilega og óviðeigandi fram í gegnum myndina. Ég skil ekki pælinguna við að hafa einungis þrjú lög, því þegar þau komu stungu þau svo í stúf. Annaðhvort fimm, sex lög eða ekkert.
Myndin er samt ekkert slæm, þó ég sé heldur neikvæður. Blu er ógeðslega skemmtileg og fyndin persóna og þó að myndin sé óspennandi framan af verður hún aldrei leiðinleg. Myndin er vel talsett, sérstaklega af Jesse Eisenberg eins og áður segir. Myndin mun höfða til barna en fullorðnir geta líka notið hennar, þó hún bjóði ekki upp á neitt sérstakt fyrir eldri áhorfendur.





Category: Teiknimynd, Ævintýri



Ég er sammála þér svona í meginatriðunum þó ég skilji ekkert í einkunninni sem þú gefur myndinni.
Tek undir að myndin er frekar óspennandi og er það eiginlega allan tímann. Myndin átti nokkra spretti inná milli en annars var sagan frekar langdregin, óáhugaverð, fyrirsjáanleg og klisjukennd. Nokkrir brandarar en þeir voru frekar ódýrir, en samt sem áður, ég hló nokkrum sinnum og brosti einnig stöku sinnum. Persónur fannst mér almennt leiðinlegar, mér fannst Blu og Rafael einu persónurnar sem eitthvað var varið í.
Og já, lögin. Ekki að gera sig.
Mér fannst eins og leikstjórinn, sem er brasilískur nota bene, vera búa til mjög langa og stóra túristaauglýsingu um Brasilíu. Kjötkveðjuhátíðin, góða veðrið, strendurnar, svifdrekarnir og stóra Jesú styttan – allt var þetta mjög auglýsingalegt fyrir mér.
Rio fær ekki nema 2 stjörnur hjá mér og þá finnst mér ég vera örlátur. Góð krakkamynd í besta falli.