Rango (2011)

| 18. Mar, 2011 | 0 Comments

Leikstjóri: Gore Verbinski
Handritshöfundur: John Logan
Leikraddir: Johnny Depp, Isla Fisher, Ned Beatty, Abigail Breslin, Bill Nighy
Lengd: 95 mín

Kamelljónið og gæludýrið Rango verður óvart viðskila við eigendur sína á ferðalagi um eyðimörk Kaliforníu. Allt sitt líf hefur hann búið við öryggi og gott líf í búrinu sínu þar sem hann dreymdi um hetjudáðir, frama og frægð. En nú, þegar hann er frjáls, þarf hann sjálfur að hugsa um sig og endar í smábænum Dirt. Eftir röð tilviljana, lyga og heppni, hreppir hann fógetastarfið í bænum og telur sig hafa dottið í lukkupottinn en áttar sig engan veginn á því að undir niðri kraumar spilling og óþverraskapur þar sem lífæð bæjarins hefur verið stolið – vatninu – og lendir það á Rango að endurheimta vatnið.

Óhætt er að segja að Rango sé öðruvísi barnamynd en maður á að venjast. Framleidd m.a. af Nickelodeon, þá mátti búast við pjúra barnamynd en svo er ekki raunin því Rango á fullt erindi fyrir þá sem eldri eru. Það eru reynsluboltar miklir sem standa að baki myndinni; leikstjórinn Gore Verbinski á brokkgengan feril að baki en hans þekktustu myndir er Pirates of the Caribbean þríleikurinn sem malaði gull, handritshöfundurinn John Logan hefur tvisvar verið tilnefndur til Óskars en hann á að baki m.a. Gladiator, The Aviator og Sweeney Todd, tónlistin er svo í höndum snillingsins Hans Zimmer og stórstjarnan Johnny Depp er röddin á bak við aðalpersónuna Rango.

Það eru einmitt þessir fjórir menn sem gera Rango að þeirri mynd sem hún er og eiga alveg jafn mikið í henni. Leikstjórnin er mjög örugg og handbragð Verbinskis er áberandi, myndin rokkar frá fyndni yfir í hörkufínan hasar eins og hendi sé veifað og allt liggur þetta vel í höndunum á Verbinski. Handritið hans Logans er gott en ekki framúrskarandi, sagan er í heildina góð með alvöru plotti sem gengur upp, nokkuð skemmtileg saga en ekki nógu heilsteypt, er töluvert fyndin á köflum en þó ekki nógu fyndin og persónurnar eru hálf flatar fyrir utan Rango sjálfan. Tónlistin eftir Zimmer er frábær þar sem hann leikur sér mikið með þessa týpísku vestratónlist en hún er mjög lifandi og áberandi í myndinni þannig að upplifunin er mun meiri en ella. Ég get næstum fullyrt að þetta er besta frammistaða hans til þessa. Svo er það snillingurinn Johnny Depp sem fer hreinlega á kostum í leikröddum enda með mjög breitt raddsvið og getur nánast gert hvað sem er.

Rango er afar fersk teiknimynd, hún kemur á óvart á svo margan hátt; hún er snjöll, fyndin, ofbeldisfull og skemmtilega öðruvísi. Stíllinn er æði sérstakur, útlit myndarinnar er hrátt þar sem ljótleikinn ræður ríkjum en myndin er samt alveg feykivel teiknuð, oft á tíðum alveg gullfalleg þar sem mikið var nostrað við smáatriði. Stundum fékk ég á tilfinninguna að Quentin nokkur Tarantino hefði komið að myndinni sem co-leikstjóri því það eru mörg Tarantino-leg stílbrögð í myndinni sem eru mjög töff. Vísað er í slatta af kúrekamyndum frá meistara Clint Eastwood og augljóst er að hann hefur verið fyrirmyndin að sögunni, einn karakter er bein tilvísun í hann og það er greinilegt að það er verið að votta honum virðingu sína enda svalasti maður sem hefur gengið á jörðinni.

Rango er skemmtileg fjölskyldumynd en ég tel að hún sé ekki við hæfi fyrir minnstu börnin en annars ætti enginn að vera svikinn.

★★★½☆

Tags: , , , , , ,

Category: Grín, Hasar, Teiknimynd, Vestri

Leave a Reply

Switch to our mobile site