Mission Impossible: Ghost Protocol (2011)
Tom Cruise snýr aftur í fjórða
sinn sem IMF njósnarinn Ethan Hunt, markmiðið í þetta sinn: að bjarga heiminum eina ferðina enn. Brad Bird tekur hér við kyndlinum en hann er margverðlaunaður leikstjóri en hann hefur eingöngu leikstýrt teiknuðum myndum, m.a. The Incredibles, þannig að hvernig í ósköpunum datt fólki í hug að rétta honum Mission Impossible keflið?
Þar sem ég er búinn að bíða með mikilli eftirvæntingu eftir myndinni tók ég mig til og horfði á allar Mission Impossible myndirnar áður en ég fór á Ghost Protocol. Það er óhætt að segja að nýjasta eintakið sker sig svo sannarlega út frá hinum myndunum en hvort það sé á góðan eða slæman hátt, það er erfitt að dæma.
Myndin er gífurlega sveiflukennd, full af háum og lágum punktum, það er fullt af hasar og það verður að viðurkennast að þó svo að Brad Bird hafi litla reynslu í kvikmyndagerð var hasarinn góður og myndin er mjög fagmannlega gerð. Það sem truflaði mig við myndina, fyrir utan aldurinn á Tom Cruise og staðreyndin að hann leit út eins og sveskja ber að ofan, er að myndin var einhvern veginn út um allt. Erkióvinurinn var skelfilegur, hann var bara peð ef borinn saman við Philip Seymour Hoffman. Það sem ég var eiginlega mest spenntur fyrir voru leikararnir í aukahlutverkunum, það er að segja Jeremy Renner og Simon Pegg. Því miður þá verð ég að segja að ég varð fyrir vonbrigðum með persónu Renner, þetta var eins og að vera með kobe nautakjöt í matinn og brenna steikina. Hann var algjörlega vannýttur. Simon Pegg hinsvegar var ágætur en ekki hans besta hlutverk.
Þegar í heildina er litið þá vantaði eitthvað til að gera ágæta mynd góða, það sama og gerði hinar myndirnar sérstakar, þetta Mission Impossible einkenni. Þó svo að græjurnar í myndinni voru flottari og hasarinn góður þá náði myndin ekki að heilla mig.
Niðurstaða: Mission Impossible: Ghost Protocol reynir of mikið og það verður henni að falli, Tom Cruise er að verða gamall sem á að halda sig í skyrtunni og vonum að Brad Bird haldi sig í teiknimyndunum því þar á hann heima.









