In Time (2011)
Í framtíðinni er mannfólkið genabreytt til að lifa eftir sinni innri klukku. Fólk hættir að eldast eftir að það nær 25 ára aldri og þá fer klukkan að telja niður. Peningar, gull og demantar eru verðlausir. Eini gjaldmiðillinn sem er einhvers virði; tími. Tíminn er að renna út hjá Will Salas þegar hann fær í hendurnar heila öld. Hann er staðráðinn í því að breyta örlögum sínum og nota tímann.
Hérna er á ferðinni mynd með mjög skemmtilegri hugmynd og fær mann virkilega til að hugsa sinn gang. Andrew Niccol bæði skrifar og leikstýrir myndinni en hann hefur leikstýrt og/eða skrifað myndir á borð The Truman Show, S1M0NE og Lord of War. Niccol byggir söguþráðinn vel upp og málar hann flotta mynd þannig að maður lifir sig vel inn í myndina. Það er virkilega gaman að sjá hversu langt þeir ganga í hugsun og verki við að búa til nýjan raunveruleika.
Það er ekki margt sem ég get sett út á myndina en það var tvennt sem Niccol gerði skelfilega; hasarinn og eltingaleikirnir, en myndin skartar einni verstu bílveltu sem ég hef séð (eitthvað sem ætti ekki að fara framhjá neinum). Persónurnar eru áhugaverðar og finnur maður til með þeim, Timberlake og Seyfried eru mjög fín í myndinni, Bonnie og Clyde straumarnir sem maður fékk frá þeim voru hreint magnaðir. Það var virkilega gaman að sjá persónu Timberlake (Will Salas) því hún þróaðist á ákveðin veg, það voru ákveðnir þættir í henni sem maður sér ekki venjulega (hægt að orða það að hún datt ekki í klisjukennda steríótýpu). Áhöfnin yfir höfuð stendur sig með prýði og var hún mjög vel valin.
In Time er flott framtíðarspennumynd sem allir ættu að kíkja á, hún fær mann eflaust til að hugsa um hvernig mannskepnan eyðir tímanum. Ef það hefði verið eytt minni tíma í hasarinn og meiri tíma í að fara dýpra í söguþráðinn hefði myndin náð háum stalli hjá mér, en í versta falli verður þetta afbragðs afþreying.





Category: Spennu, Vísindaskáldsaga




