Hævnen (2010)
Leikstjóri: Susanne Bier
Handritshöfundur: Anders Thomas Jensen
Aðalhlutverk: William Jøhnk Nielsen, Markus Rygaard, Mikael Persbrandt, Trine Dyrholm, Ulrich Thomsen
Lengd: 115 mín
Elias (Rygaard) á ekki sjö dagana sæla, í skólanum er hann fórnarlambs eineltis og heima fyrir eru foreldrar hans að skilja. Hefur ástandið skiljanlega áhrif á hann en hann er lokaður, kúgaður og óhamingjusamur. Foreldrar hans eru ráðalausir hvað sé hægt að gera til að laga ástandið og skólayfirvöld loka augunum. Faðir Eliasar, Anton (Persbrandt), starfar sem læknir í Danmörku og í flóttamannabúðum í Súdan og því lítið heima til að sinna syninum. Þegar Christian (Nielsen) byrjar í skólanum og verður vitni að ofbeldinu sem Elias verður fyrir, tekur hann til sinna ráða. Christian bjó lengi vel í London en er nýfluttur aftur heim til Danmerkur með pabba sínum eftir móðir hans lést úr krabbameini og er fullur af heift og reiði. Vinskapur þeirra á eftir að taka óvenjulega stefnu með ófyrirséðum afleiðingum.
Flestir ættu að kannast við Susanne Bier núorðið en hún er ein af þekktustu leikstjórum Danmerkur með myndir á borð við Den eneste ene, Brødre og Efter bryllupet á ferilskránni. Óhætt er að segja að ferill hennar hafi tekið risastökk upp á við með Hævnen en myndin stóð uppi sem sigurvegari á Golden Globe og Óskarsverðlaunahátíðinni í flokki erlendra mynda núna í vetur. Susanne Bier hefur lengi vel fjallað um sambönd fólks og þá helst fjölskyldusamskipti og Hævnen, sem útleggst á okkar ylhýra sem Hefndin, sver sig í ætt við fyrri myndir leikstýrunnar.
Myndin fjallar um hegðun einstaklinga og hvernig það hefur áhrif á annað fólk; myndin er ádeila á þjóðfélagsmeinið sem einelti er og afleiðingar þess. Myndin sýnir hvernig ofbeldi, mest megnis líkamlegt, skaðar andlega líðan fólks og hvernig fórnarlömbin taka á því, á sinn hátt.Svo er önnur hlið á málinu; hvernig skal taka á ofbeldismönnum sem láta sér ekki segjast með því að hefna fyrir ófarir annarra. Þessi umfjöllunarefni eru snyrtilega sögð af handritshöfundinum og leikstjóranum, myndin er töluvert áhrifarík og sterk en það vantar herslumuninn, ádeilan ristir ekki nógu djúpt og það vantar aðeins meiri kraft í ádeiluna. Skilaboðin eru ekki nógu sterk og boðskapurinn verður þ.a.l. dálítið óljós.
Hliðarsagan af föður Elias, lækninum Anton, í Súdan, er skemmtileg og gefur myndinni aukna dýpt en framan af er tilgangur þeirrar sögu óljós en áhorfandinn fær svo að sjá að allir menn, sama hversu góðhjartaðir þeir eru, láta misbjóðast þegar farið er yfir strikið og geta orðið miskunnarlausir.
Hævnen er einstaklega fagmannlega vel gerð mynd í alla staði. Sagan er góð og leikstjórnin fumlaus og örugg. Leikararnir allir með tölu eru gríðarlega sannfærandi og öflugir en þar ber hæst að nefna William Jøhnk Nielsen (sem leikur Christian) og Trine Dyrholm (móðir Eliasar) sem fara á kostum. Eins og áður segir, vann Hævnen til bestu erlendu myndar á síðustu Óskarsverðlaunahátíð og skal ósagt látið hvort hún sé vel af verðlaununum komin því undirritaður hefur ekki séð hinar myndirnar sem tilnefndar voru, en góð er hún.
Óhætt er því að mæla með Hævnen sem er áhrifamikil skandinavísk dramamynd.





Category: Drama


