Drive (2011)

| 23. Sep, 2011 | 1 Comment

Áhættuleikari í Hollywood sérhæfir sig í kappakstri og áhættuleik tengdum akstri en utan eðlilegs vinnutíma er hann flóttabílstjóri fyrir glæpamenn sem þurfa að komast skjótt af vettvangi á hraðskreiðum bílum. Í eitt skiptið mistekst rán og við það er sett fé til höfuðs honum.

Drive er sérstök mynd, jafnvel einstök. Við fyrstu sýn virðist myndin eðlileg, trailerinn gaf ekki til kynna hvers konar mynd er hér á ferð og söguþráðinn gætum við séð í mörgum spennumyndum, en fljótlega kemur í ljós að Drive er öðruvísi en flest sem þú hefur séð. Val og notkun á tónlist, myndataka, aðalpersónan og margt fleira er svo furðulegt og svo gott. Það er erfitt að fanga andrúmsloft myndarinnar og koma á blað. Það er eins og þú sért að fylgjast með draumi einhvers annars. Fyrri hluti myndarinnar er rólegur, fer í að byggja upp persónurnar og kynna fléttuna en þegar það kemur að misheppnaða ráninu fer myndin í allt aðra átt. Eins og hendi væri veifað mætti halda að Robert Rodriguez væri sestur í leikstjórastólinn því skyndilega eru höfuð skotin af með haglabyssu og stöppuð í graut. Þessi umbreyting er alveg mögnuð! Það eina sem ég naut ekki við myndina var fléttan, söguþráðurinn var ágætur en fléttan fannst mér ekki passa inn í myndina.

Þó að þetta sé drama/spennumynd með nóg af blóði er hún fyrst og fremst keyrð áfram af bílstjóranum nafnlausa, túlkaður af Ryan Gosling. Hann er vægast sagt áhugaverð persóna; fámáll, umhyggjusamur og fáránlega harður. Ryan Gosling er geðveikur í þessu hlutverki. Hann er svo viðkvæmur eitthvað, svo hlédrægur að hann kemur varla orðunum upp úr sér og svo breytist hann í geðsjúkling þegar hann þarf að vernda sig með ofbeldi. Aðrar persónur eru ekki jafn áhugaverðar, Carey Mulligan leikur nágranna hans sem hann tengist vel, og Bryan Cranston, Albert Brooks og Ron Perlman eru í öðrum aukahlutverkum. Leikstjórinn er Nicolas Winding Refn og áður hefur hann leikstýrt m.a. Pusher þríleiknum danska, Bronson og Valhalla Rising.

Drive skarar framúr á flestum sviðum. Hún er áhugaverð, og öðruvísi en fyrst og fremst er hún fáránlega svöl! Þetta er auðveldlega topplista mynd og ljóst er að hún mun skapa sér stóran cult aðdáendahóp.

★★★★½

Tags: , , , , ,

Category: Drama, Spennu

Comments (1)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Alveg sammála 100%

    Var ekki alveg nógu og sáttur með endann, væri gaman að lesa bókina sem myndin er byggð á.

    En hefði verið svo töff ef að myndin hefði endað eins og hún byrjaði (án þess að segja of mikið um þráð myndarinnar)

Leave a Reply

Switch to our mobile site