Bridesmaids (2011)

| 4. Jul, 2011 | 0 Comments

Leikstjóri: Paul Feig
Handritshöfundar: Kristin Wiig og Annie Mumolu
Aðalhlutverk: Kristin Wiig, Maya Rudolph, Rose Byrne, Melissa McCarthy, Chris O‘Dowd
Lengd: 120 mín

Þegar Lillian (Maya Rudolph) trúlofast sínum heittelskaða og velur bestu vinkonu sína og æskufélaga, Annie (Kristin Wiig), til að vera aðalbrúðarmærin sín, þá ætlar Annie sér að reyna að komast hjá miklum útgjöldum og umstangi í kringum brúðkaupið. Hún er peningalítil, nýbúin að missa bakaríið sitt í gjaldþrot og karlamálin hennar eru í lamasessi. Þegar hún kynnist nýrri vinkonu Lillian og annarri brúðarmær, Helen (Rose Byrne), þá fer allt fjandans til hjá Annie og hún nær botninum í lífi sínu. Annie sér í Helen verðuga samkeppni um vináttu og ást Lillian og þar virðist Annie ætla að vera undir í samkeppninni því Helen er gáfuð, falleg og umfram allt, efnuð, þannig að Annie verður að taka á honum stóra sínum til að vera ofan á en það verður ekki gert nema á afar skrautlegan hátt – og að sjálfsögðu með ófyrirséðum afleiðingum.

Bridesmaids hefur verið auglýst sem stelpumynd fyrir stráka og það get ég vel tekið undir. Þetta er ekkert síður gamanmynd sem höfðar til karlmanna en til kvenmanna þó að aðalhlutverkin séu í höndum kvenna, handritið skrifað af konum sem fjallar um konur, því grófur neðanbeltishúmorinn mun eflaust hitta í mark hjá strákunum. En hún hefur líka verið auglýst grimmt hjá einu bíóhúsi borgarinnar með stórum stöfum: Betri en The Hangover. Það get ég ekki tekið undir.

Stikla myndarinnar lofaði mjög góðu sem og fyrstu umsagnir um myndina. Ég var því nokkuð spenntur að sjá þessa strákalegu stelpumynd sem átti að vera betri en besta gamanmynd síðasta áratugar, The Hangover. Ég sá mjög fljótt að allur samanburður við The Hangover var rangur og að öll jákvæðnin sem þessi mynd hefur fengið hlyti að vera einhver mistök.

Ég fílaði ekki Bridesmaids. Mér fannst myndin vera ein stór aumkunarverð tilraun til fyndni. Brandararnir voru ódýrir og skorti allan frumleika í þá. Mörg atriðin gengu of langt – þá ekki í þeim skilningi að þau voru of gróf – heldur í þeim skilningi að atriðin voru  ALLTOF löng og þeim var ofgert. Tvö góð dæmi um það er annar vegar keppnisræðan milli Annie og Helenar í trúlofunarveislunni hennar Lillian sem engann endi virtist ætla taka, og hins vegar þegar Annie reyndi að fanga athygli löggunnar Nathan Rhodes í lok myndarinnar með því að brjóta mögulega öll helstu umferðarlagabrot sem þekkjast.

En það sem gerði myndina aðallega svo ófyndna er aðalpersónan Annie. Fyrir það fyrsta þá eru meira og minna allar persónurnar over the top ýktar og þar er Annie fremst í flokki. Sú persóna er afar ótrúverðug og óaðlaðandi og get ég sagt með nokkurri vissu að hún sé leiðinlegasta kvikmyndapersóna síðustu ára. Sorry með mig. Kristin Wiig, sem leikur Annie og er annar handritshöfunda, hefur verið að færa sig uppá skaftið undanfarin ár í kvikmyndaheiminum og hefur greinilega einsett sér með þessari mynd að koma sér fyrir alvöru á kortið sem gamanleikkona því þessi mynd á augljóslega að vera hennar eldskírn.

Þrátt fyrir allt þá er Bridesmaids ekkert drepleiðinleg mynd, bara afskaplega ófyndin með virkilega pirrandi aðalpersónu. Ég vona að ég verði ekki stimplaður karlremba fyrir þessa gagnrýni og einhver konuhatari, því svo er ekki, konur geta alveg verið jafn fyndnar og karlar. Bara ekki í þessu tilviki.

★★☆☆☆

Tags: , , , , , ,

Category: Grín

Leave a Reply

Switch to our mobile site