Borgríki (2011)

| 16. Oct, 2011 | 0 Comments

Borgríki er nútíma glæpasaga úr reykvískum raunveruleika sem segir frá serbneskum bifvélavirkja sem missir ófætt barn sitt í árás. Í hefndaraðgerðum sínum tvinnast örlög hans saman við lögreglukonu sem ýtt er út á ystu nöf, spilltan yfirmann hennar í fíkniefnadeild lögreglunnar og glæpakóng sem er að missa tökin á veldi sínu.

Almennt er ég ekki mjög hrifinn af íslenskum myndum, því satt best að segja hefur fólk sem á ekkert erindi í kvikmyndagerð  verið að gera kvikmyndir. Undanfarin ár hafa myndirnar þó farið batnandi og er það þannig í dag að flestar þeirra (a.m.k. þær sem ég sé) eru bara frekar góðar, og virðumst við standa jafnvíg sama hvaða stefnu kemur að. Sbr Reykjavík-Rotterdam, Blóðbönd og Brúðgumann. Allt ólíkar myndir en allar afbragðsgóðar.

Borgríki er, að ég held, önnur undirheimamynd okkar Íslendinga en Reykjavík-Rotterdam vígði stefnuna. Samanburðurinn er því óhjákvæmilegur með aðeins tvær myndir innan sömu stefnu. Rvk-Rtm er spennumynd og frábær sem slík en Borgríki er allt öðruvísi. Hún er róleg og yfirveguð en spennandi á réttum tímum. Hún meira að segja brýtur aðeins upp hefðbundið frásagnarform og gerir það vel. Ólafur de Fleur Jóhannesson leikstýrir. Áður hefur hann m.a. gert Kurteist fólk, Stóra planið og Blindsker. Hann er því, tjah, mistækur leikstjóri.

Öll tæknivinnsla er fagmannlega unnin og leikur er virkilega góður og ekki á lægra stigi en við erum vön frá Hollywood. Í helstu hlutverkum eru Ágústa Eva Erlendsdóttir, Ingvar E. Sigurðsson, Björn Hlynur Haraldsson og Zlatko Krickic. Þau eru öll fáránlega góð og þó það sé ósanngjarnt að gera upp á milli þeirra þá bar Zlatko Krickic af.

Ágústa Eva leikur löggu, Ingvar E. undirheimabarón, Björn Hlynur starfar fyrir hann og Zlatko serbneskan óþokka sem ætlar sér að taka yfir margþætta starfsemi Ingvars. Persónusköpun er góð, persónurnar eru heilsteyptar, og þó þær hafi allar sínar myrku hliðar þá vorkennum við þeim öllum og styðjum á sama tíma, þökk sé góðu handriti. Sem utanaðkomandi aðili að undirheimum Íslands þá get ég vel ímyndað mér að myndin gefi raunhæfa mynd af þeim.

Það er sama hvernig þú lítur á Borgríki, þetta er frábær mynd á allan hátt.

★★★★☆

Tags: , , , ,

Category: Drama, Glæpa, Spennu

Leave a Reply

Switch to our mobile site