Viðtal við Hjálmar Einarsson, leikstjóra Boðbera

| 7. Jul, 2010 | 0 Comments

Hjálmar Einarsson

Kvikmyndin Boðberi sem verður frumsýnd í Sambíóunum um allt land í dag, 7. júlí, er glæný íslensk kvikmynd, gerð af ungum og upprennandi kvikmyndargerðarmönnum og óhætt er að segja að miðað við fyrstu kynni er um að ræða hörkuspennandi spennutrylli sem mun án efa slá rækilega í gegn hjá íslensku þjóðinni. Róbert Michelsen, greinarhöfundur BÍÓFilmunnar, heyrði í handritshöfundi, framleiðanda og leikstjóra myndarinnar, Hjálmari Einarssyni, og hann lá ekki á svörunum.

Ádeila á íslenskt góðærissamfélag

Hver er Hjálmar Einarsson og félagi þinn, Hákon Einarsson? Segðu lesendum BÍÓFilmunnar frá ykkur.
Hjálmar: Ég og Hákon höfum framleitt nokkrar stuttmyndir saman í gegnum tíðina. Ég bjó í Prag í fimm ár og lærði kvikmyndagerð í FAMU, Kvikmyndaskóla tékkneska ríkisins. Svo starfaði ég þar við kvikmynda- og auglýsingagerð áður en Boðberi fór af stað.

Af hverju fóruð þið út í að gera kvikmynd?
Hjálmar: Ég held að þegar menn eru með ólæknandi kvikmyndabakteríu er það bara þessi þörf að gera hlutina.

Hvaðan er hugmyndin sprottin og hvað gaf ykkur innblásturinn?
Hjálmar: Ég er yfirleitt lengi að skrifa en Boðberi kom bara nokkuð fljótt. Eftir Tékklandsdvölina kom ég heim til Íslands og mér fannst ég ekki þekkja mitt gamla land. Komnar voru nýjar byggingar og heilu hverfin frá því að ég fór fyrst út. Þenslan var ekki bara í efnahagnum heldur líka í þjóðarsálinni. Ég skrifaði því mynd um fólk sem kemst að djöfullegu plotti í efri þrepum þjóðfélagsins sem gæti skapað algjöran glundroða í íslensku samfélagi. Þetta átti að vera hreinn skáldskapur en raunveruleikinn átti svo eftir að bergmála í svo um munaði í myndinni. Svo eru aukafléttur í sögunni sem fólk verður bara að sjá.

Hvernig kvikmynd er Boðberi? Miðað við stikluna sem er að mínu mati mjög áhugaverð og spennandi, að þá má segja að þetta sé spennutryllir, mjög ofbeldisfull og gróf, og virðist fjalla um mann í persónulegri herför gagnvart auðmönnum.
Hjálmar: Boðberi er með stóran striga sögulega séð. Þetta er yfirnáttúrulegur thriller sem er líklega ein mesta ádeila sem sést hefur í íslensku bíói. Munum það að í þessu landi var ekki tjáningarfrelsi fyrir hrun. Boðberi hlífir engum í ádeilunni en er þó fyrst og fremst skemmtun. Hún er um íslenskan samtíma en er þó ólík öðrum íslenskum myndum í framsetningu.

Hrunið gerði erfitt fyrir – engir opinberir styrkir

Hvenær má segja að ferlið að framleiðslu Boðbera hafi hafist?
Hjálmar: Boltinn fór hratt af stað strax í byrjun 2008. Edwin Krieg ,þýskur tökumaður sem ég vann  með í Tékklandi, kom fljótlega inn í myndina og fyrr en varir vorum við farnir að finna tökustaði og undirbúa tökur.

Nú eru um 20 mánuðir síðan tökum lauk, hvernig stendur á því að myndin er fyrst að koma í bíó núna?
Hjálmar: Við eins og allir aðrir urðum fyrir barðinu á hruninu og það setti strik í reikninginn í lokafjármögnun. Við neyddumst til að vinna myndina hægar fyrir vikið. Þessi mynd fékk ekki krónu í opinbera styrki og það er meira en að segja það að koma svona mynd á koppinn. Það er í raun kraftaverk og hefði aldrei verið hægt nema fyrir allt það góða fólk sem með einum eða öðrum hætti kom að myndinni.

Það eru nokkur frekar stór nöfn í myndinni, þar ber hæst að nefna hin gamalreynda eðalleikara Gunnar Eyjólfsson. Hvernig gekk að fá leikarana til að vinna með ykkur? Voru einhver stór nöfn sem höfnuðu að leika í myndinni?
Hjálmar: Það voru ótrúlega fáir sem ekki vildu vera með. Auðvitað voru einhverjir hræddir við efnistökin en ég vil ekki nefna nein nöfn. Flestir voru til í tuskið.

Er á plönunum að gera fleiri myndir?
Hjálmar: Ég er að vinna að heimildarmynd og svo er ég með tvö handrit í vinnslu en mér er frekar illa við að tala um verk sem enn eru á teikniborðinu þar sem hlutirnir eru fljótir að breytast.

Lokaspurningar um myndina. Er Boðberi góð mynd? Mun hún slá í gegn?
Hjálmar: Það er fyrir aðra að dæma. Ég er sáttur. Ég held að Boðberi slái nýjan tón í íslenskri kvikmyndagerð. Mun hún slá í gegn? Það hef ég ekki hugmynd um en minn sigur er að hafa náð að klára hana án opinberra styrkja. Ég held að menn geri bara eina mynd upp á eigin spýtur á lífsleiðinni. Þetta tekur mikið á og ég held líka að ég sé búinn með alla mína greiða hjá fólki eftir þessa rússíbanareið. En skemmtileg var þessi rússíbanareið.

Á persónulegu nótunum

Hverjar eru þínar uppáhalds kvikmyndir ?
Hjálmar: Þær eru of margar en ætli tékkneski leikstjórinn Milos Forman sé ekki gúrú-ið. [Innskot greinarhöfundar: Milos Forman er leikstjóri sem vann Óskarinn fyrir One Flew Over the Cuckoo‘s Nest árið 1976. Myndin hlaut einnig verðlaun sem besta myndin, besta handritið og leikararnir Jack Nicholson og  Louise Fletcher unnu Óskara fyrir sinn part í myndinni. Hún var fyrsta myndin í 41 ár til að vinna aðalverðlaunin fimm á Óskarsverðlaunahátíðinni. Samtals var myndin tilnefnd til níu verðlauna.]

En uppáhalds leikarar?
Hjálmar: Darri Ingólfsson sem leikur aðalhlutverkið í Boðbera. Hann á leiksigur í myndinni. Í erlendu deildinni eru það Paul Newman og Jack Nicholson á áttunda áratugnum. Jack Nicholson átti ekki vonda mynd á þessum tíma.

Einhver lokaorð?
Hjálmar: Ég hef þrennt að segja ungum kvikmyndagerðarmönnum. Digital Indie byltingin er byrjuð! Treystið ferlinu og kýlið á það.

BÍÓFilman þakkar Hjálmari kærlega fyrir greinargóð svör og óskar honum og öðrum aðstandandendum Boðbera innilega til hamingju með myndina. Það er einlæg ósk okkar hér á BÍÓFilmunni að myndinni verði vel tekið því það er einstakt afrek að framleiða kvikmynd í fullri lengd og það án þess að króna hafi komið frá ríkinu, sem er mjög óvenjulegt. Það gerir myndina enn athyglisverðari og því er mikilvægt að íslenska þjóðin styðji rækilega við bakið á þessum metnaðarfullu og hugrökku mönnum svo þeir geti skapað nýtt efni og þróast sem kvikmyndagerðarmenn.

Upplýsingar

Á heimasíðu Boðbera, www.bodberi.com, má nálgast allar upplýsingar tengdar myndinni.

Kynning á myndinni frá heimasíðu Boðbera:
YouTube Preview Image

Poster:

Category: Viðtöl

Leave a Reply

Switch to our mobile site