Twilight: Eclipse (2010)
Hér er á ferðinni þriðja myndin í Twilight seríunni og má segja að allir lausir þræðir úr fyrri myndunum stigmagnast og mynda það sem er í dag Twilight Eclipse. Fyrir þá sem vita ekki hvað Twilight er eða hafa ekki séð upprunalegu myndina og Twilight: New Moon þá eru þetta myndir byggðar á bókum Stephenie Meyer en þær eru í dag fjórar talsins og sú fimmta á leiðinni. Þær fjalla um ástarþríhyrning mennsku unglingsstúlkunnur Bellu Swan og vampírunnar Edward Cullen og varúlfsins Jacob Black, sem er ástfanginn af Bellu en fær ástina ekki endurgoldna.
Forboðin ást, brúðkaup, meydómur, stríð og hefnd eru þau þemu sem koma við í myndinni en þegar fólk fer að hverfa í miðbæ Seattle þarf Cullen ættin að grípa til sinna ráða. Á meðan það gengur á er Bella að reyna að ná sáttum við Jacob og ákveða hvaða stefnu líf hennar á að taka nú þegar líður að útskrift. Þrátt fyrir að vera svarnir óvinir, leggja varúlfarnir og Cullen fólkið deilur sínar niður og sameinast gegn her nýrra vampíra sem eru að leitaað Bellu, en þetta samstarf leggur gríðarlegan þunga á samband Edwards og Bellu þar sem þau og Jacob þurfa öll að vinna saman. Mun Bella láta breyta sér og giftast Edward eða mun hún láta blendnu tilfinningar sínar til Jacob ráða völdum og eyða mannlegu lífi með honum?
Myndinni er leikstýrt af David Slade en allar þrjár Twilight myndirnar eru með sinn eigin leikstjóra og tel ég það vera megin mistök kvikmyndaversins, þó svo að fjölbreytni sé góð, þá er mikilvægt í svona þríleik (tala nú ekki um ef myndirnar verða fimm talsins) að sýnin verði sú sama. Ég get ekki sagt að ég sé stærsti aðdáandi Davis Slades því að myndatakan er ekki til fyrirmyndar, í bardagaatriðunum var mjög óskýrt hvað var í gangi og sjónarhorn sem áttu að ýta undir sýn leikstjórans en enduðu með að draga úr áhrifum bardagans. Síðan er það annað, í myndinni er farið djúpt ofan í bakgrunn persónanna en mér fannst það framkvæmt á ansi einfaldan og fljótlegan hátt. Þrátt fyrir að myndatakan var ekki góð og mér hafi fundist farið illa í suma hluti hafði það ekki það mikil áhrif á myndinni því Twilight: Eclipse er alveg þokkalegasta mynd. Það eru margir sem kalla myndirnar bull og vitleysu en þrátt fyrir allt þá leynist grípandi söguþráður og nægilega áhugaverðar persónur sem halda manni við efnið í gegnum tilgangslaus samtöl og spor sem allir geta sett sig í.
Það er enginn stórleikur sýndur af hálfu leikarana, Robert Pattinson er ennþá jafn fölur og krípí og Taylor Lautner hefur greinilega haldið sig í ræktinni á milli mynda. Þeir fá að skína aðeins meira í þessari mynd heldur en áður fyrr (sérstaklega þar sem Pattinson var einungis í enda myndarinnar New Moon) en það eru sýndar nýjar hliðar á báðum persónunum sem gera þá tvo ennþá meira heillandi en áður. Þeir mega eiga það að þeir standa sig vel í að hata hvorn annan á hvíta tjaldinu og ná þeir skemmtilegum samleik. Kristen Stewart er leikkona sem ég tel vera ofmetna, hún er ekki það sem ég myndi kalla hæfileikarík, en hún hefur einhvern x-factor sem fær mig til að líka við hana. Ég tók hvað mest eftir því í myndinni Adventureland, sem er hennar besta hlutverk að mínu mati. Ég hef það líka á tilfinningunni að Kristen Stewart leiðist hlutverkið því mér fannst ég skynja eitthvað áhugaleysi hjá henni. Kristen Stewart er veiki hlekkurinn í myndinni en þrátt fyrir það tel ég hana vera besta kandídatann fyrir hlutverk Bellu Swan því hún er með mjög þægilega nærveru og hún sogar mann inn í myndina, á einhvern mjög furðulegan hátt.
Það er hægt að setja margt út á Twilight því þetta er ekki þessi venjulega íhaldssama vampírusaga sem tekur mið af vampírugoðsögnum, líkt og það að vampírur geti ekki komið inn í hús án leyfis, að þær geti gengið í sólarljósi og að það eina sem drepi þær er silfurkúla eða tréstika beint í hjartað. En ég tel það samt jákvætt við Twilight, myndirnar eru að brjóta norm og búa til ný, sem er hressandi og áhugavert, eitthvað sem aðskilur þær frá öllum hinum og gerir þær sérstakari en ella. Allt í allt er þetta ágætis afþreying og hin fínasta mynd. Það er óhætt að segja að þetta sé stelpumynd, en það eru þó eflaust margir strákar sem munu hafa gaman af myndinni. Twiligt: Eclipse er grípandi mynd sem heldur áhorfandanum frá byrjun til enda.







(1 atkvæði, einkunn: 4.00 af 5)