Þema: þýskur júlí

| 1. Jul, 2010 | 0 Comments

Eftir mikla umhugsun um hvert næsta þema BÍÓFilmunnar ætti að vera, bar ég undir aðra ritstjóra síðunnar að hafa þýskt þema. Svörin voru ekki af verri endanum, „ég var akkúrat að hugsa um það“.
Það var því ráðist í það verkefni að horfa á þýskar myndir. Þær eru, eins og vænta má, misgóðar en Þjóðverjar og Austurríkismenn eru heljargóðir kvikmyndagerðarmenn, sama hvert litið er; handritagerð, tæknivinnslu og hafa þar að auki næmt auga fyrir góðum leikframmistöðum. Þetta er reyndar ekki al-þýskur mánuður, heldur tökum við almennt fyrir þýskumælandi myndir hvaðan sem þær koma en þær reynast bara vera þýskar og austurrískar í þessu tilfelli.

Þjóðverjar eiga ekki margar heimsþekktar kvikmyndastjörnur eða kvikmyndagerðarmenn. Þeir helstu eru leikarinn Daniel Brühl, spurning hvort það megi flokka Heidi Klum og Claudiu Schiffer sem leikkonur, leikstjórarnir alræmdu Uwe Boll og Roland Emmerich ásamt Wolfgang Petersen og eldri leikstjórum á borð við F.W. Murnau og Leni Riefenstahl. Það þarf því að kafa dýpra en rétt undir yfirborðið til að komast almennilega að þýskri kvikmyndagerð.

Þjóðverjar og Austurríkismenn virðast heldur ekki skammast sín fyrir arfleið sína. Til að mynda snúast a.m.k. fimm myndir af þeim sem við tökum fyrir beinlínis um seinni heimsstyrjöldina og þrjár snúast eða koma inn á skiptingu Þýskalands í nærri 45 ár í tvo helminga. Þjóðverjar upplifðu mjög áhugaverða tíma á síðustu öld sem hefur orðið þeim mikill innblástur í ótal kvikmyndir og bækur.

Það er einlæg ósk okkar að þið njótið með okkur þýskra þema daga og að við höfum opnað sjóndeildarhring ykkar fyrir nýju efni. Góða skemmtun!

Tags:

Category: Fréttir, Kvikmyndir

Leave a Reply

Switch to our mobile site