The Sorcerer’s Apprentice (2010)

| 4. Aug, 2010 | 0 Comments

Balthazar Blake er voldugur galdramaður sem hefur leitað að arftaka Merlin í þúsund ár. Eftir langa leit fær hann Dave Stutler í fangið á sér. Lítið veit Stutler að hann er arftakinn og að líf hans muni taka stóra U-beygju þegar Blake útskýrir örlög hans. Þjálfun Stutler tekur sinn toll en hann einn getur stöðvað það sem er í uppsiglingu.

Hér er á ferðinni nýjasta mynd Disney úr herbúðum Jerry Bruckheimer og var Jon Turteltaub fenginn til að leikstýra henni. Hann er hvað mest þekktur fyrir að hafa leikstýrt National Treasure myndunum og Cool Runnings sem allir ættu að kannast við. Turteltaub byrjar myndina frekar hægt, enda er verið að kynna söguþráðinn en það vantar alla spennu eða eitthvað til að grípa mann og gera spenntan fyrir því hvað gerist næst. Í stað þess að byrja hasarinn snemma er myndin frekar dauf fyrri helminginn og veit maður varla hvað snýr upp og hvað snýr niður. Endalaust er skipt fram og aftur milli atriða sem veldur því að myndin kemst aldrei á flug. Það mætti halda að þetta væri gloppum í handriti að kenna en svo er ekki, þetta er einfaldlega Turteltaub að kenna. Sagan er margbrotin og það er mjög margt sem þarf að koma fram á 110 mínútum, en mætti fara betur í hlutina til að gera myndina skemmtilegri. Margt var mjög óljóst, sumt ekkert útskýrt og myndin var almennt stefnulaus. Það var ekki fyrr en eftir hlé sem myndin virkilega lifnaði við; hlutirnir fóru að gerast og allt tók að skýrast. Því miður var það einfaldlega ekki nóg, myndin var allt of grunn og hún náði aldrei neinum verulegum skriðþunga.

Þetta er alveg týpísk Disney mynd og það dró úr möguleika myndarinnar, hún þarf að höfða til svo margra. Hún þarf að vera fyndin, væmin, spennandi, heillandi og þarf að enda á viðeigandi Disney-hátt, allt þarf að enda vel. Jerry Bruckheimer kemur að framleiðslu myndarinnar sem þýðir að hún er stór, djörf og spennandi. Myndin er hlaðin tæknibrellum og stórum bílaeltingaleik sem kemur út mjög vel. Myndataka er til fyrirmyndar og er lítið hægt að gagnrýna tæknilegu hliðina á myndinni, eins og venjan er með Bruckheimer framleiðslu. Það er aftur á móti gallinn við flestar Bruckheimer myndir, umbúðir eru teknar fram yfir innihald.

Nicolas Cage fer með hlutverk Balthazar Blake og tel ég að hann sé að leika niður fyrir sig. Hann á að gera miklu betra en þetta og ástæða þess að hann leikur í þessari mynd er eflaust bág fjárhagsstaða hans, sem virðist valda því að hann tekur allt sem honum býðst. Áður fyrr setti hann sig í hlutverkið af lífi og sál og gaf persónum sínum einhvern eiginleika sem gerir hann að svo góðum leikara. Í The Sorcerer’s Apprentice er hann hvorki góður né slæmur og hefði hann bara átt að sleppa þessari mynd. Jay Baruchel fer með hlutverk Dave Stutler og er hann í essinu sínu, hann leikur alltaf væmna lúðann og á í raun eingöngu að gera það því að hann gerir það vel. Mín fyrstu kynni við Baruchel eru úr þáttaröðinni Undeclared og hefur hann á síðustu árum klifið hægt og rólega upp metorðastigann í Hollywood og uppskera hann vel núna. Alfred Molina fer með aukahlutverk í myndinni en mér finnst hann vera óspennandi leikari og gerði ekkert fyrir myndina. Annars er ekki mikið um eftirtektarverðan leik í myndinni.

Það mætti halda að myndin sé mjög léleg miðað við það sem er skrifað hér fyrir ofan, en svo er ekki. Myndin er skemmtileg, áhugaverð og gefur nýja sýn á töfra/galdraæðið í Hollywood. Vandamálið við myndina er að hún uppfyllir ekki þann möguleika sem hún gæti náð. Myndin náði hápunkti þegar Dave endurtók mistök Mikka Mús úr Disney-myndinni Fantasíu með því að nota galdur á kústa til að hreinsa til (það atriði má til gamans geta, gengur einmitt undir nafninu The Sorcerer’s Apprentice). Endirinn olli mér vonbrigðum, hann var alltof einfaldur og óskýr (örugglega til að geta gert framhald) en mér fannst myndin enda illa. Þegar það kemur af einkunnagjöf þá þarf að vega og meta skemmtanagildi jafnt og gæði.

Niðurstaða: The Sorcerer’s Apprentice er skemmtileg mynd sem nær þó aldrei að komast á almennilegt flug.

★★½☆☆

Tags: , , ,

Category: Ævintýri

Leave a Reply

Switch to our mobile site