The Other Guys (2010)
Leikstjóri: Adam McKay
Aðalhlutverk: Will Ferrell, Mark Wahlberg, Michael Keaton, Eva Mendes, Steve Coogan.
Lengd: 105 mín
Allan Gamble (Will Ferrell) og Terry Hoitz (Mark Wahlberg), eru rannsóknarlögreglumenn sem sinna skítastörfum innan lögreglunnar. Það er lítil sem engin virðing borin fyrir þeim eða þeirra starfi af samstarfsmönnunum og það er að gera Terry brjálaðan. Terry dreymir nefnilega um blómstra sem hasarlögga eins og þær gerast bestar í bíómyndunum en Allan þráir ekkert heitar en að sinna pappírsvinnu innandyra. Vegna skoðanaágreinings þeirra kemur þeim illa saman og þeir ná ekki að vinna sem teymi. Fyrir einskæra tilviljun slysast þeir inn í gruggugt mál óheiðarlegs milljarðamærings (Steve Coogan) og áður en þeir vita af eru þeir flæktir í stærsta mál lífs síns þar sem engum er treystandi og skyndilega þurfa þeir að treysta á hvorn annan ef þeir ætla sér að leysa málið.
Grínarinn Will Ferrell og leikstjórinn Adam McKay leiða saman hesta sína enn og aftur í The Other Guys. Þeir þekkjast vel frá áralöngu samstarfi úr Saturday Night Live þáttunum þar sem Ferrell var einn af leikurum og McKay einn handritshöfunda. Kvikmyndasamstarf þeirra hófst árið 2004 með hinni frábæru Anchorman: The Legend of Ron Burgundy sem var ein af betri grínmyndum síðasta áratugar. Síðan þá hafa þeir gert þrjár myndir, Talladega Nights (2006) og Step Brothers (2008) og nú síðast The Other Guys, sem er sú besta síðan Anchorman var og hét.
Einn af mörgum jákvæðum punktum við The Other Guys eru skemmtilega ólíkir leikarar sem deila fyndnu línunum heiðarlega á milli sín. Það er alltof algengt að sami leikarinn í myndum af þessari gerð fái allar fyndnu línurnar, sem oftar en ekki hittir illa í mark, sbr. Cop Out (sjá gagnrýni). Má þakka fínu handriti og ágætis leikstjórn þar að lútandi, Adam McKay kann sitt fag vel. Aðalleikarar myndarinnar eru fyrst og fremst Will Ferrell, sem allir ættu að kannast vel við, og Mark Wahlberg, sem er að mínu mati ekkert síðri gamanleikari en hasarleikari. Þeir ná á óvæntan hátt mjög vel saman í þessari mynd þrátt fyrir að vera ólíkir leikarar en þetta combó virkar vel, sem er eins og áður segir handritinu að þakka. Margir skemmtilegir leikarar eru í smærri hlutverkum, t.a.m. Dwayne „The Rock“ Johnson og Samuel L. Jackson en að öðrum ólöstuðum er það gamli snillingurinn Michael Keaton sem stelur senunni sem þreytti lögreglukapteininn. Það er orðið svo langt síðan ég sá hann í kvikmynd að ég man ekki einu sinni hvaða mynd það var, svei mér þá ef það var bara ekki Multiplicity frá árinu 1996. Hann er stórskemmtilegur í The Other Guys og er í mörgum af fyndnustu senunum. Vonandi er Michael Keaton að snúa til baka eftir margra ára útlegð. Ég má líka til með að nefna Evu Mendes sem á líka þessa stórskemmtilega innkomu sem kynþokkafulla eiginkona lúðans Allen Gamble.
Rétt er að hafa í huga að The Other Guys er mynd sem verður að horfa á með á réttu hugarfari. Hún er klisjukennd, heimskuleg, kjánaleg og óraunveruleg en hún er drepfyndin. Brandararnir, sem koma á tímabili á færibandi, hitta langflestir í mark. Myndin dansar allan tímann á hárfínni línu, þ.e.a.s. hún jaðrar oft við að ganga of langt en oftar en ekki stoppar brandarinn í tæka tíð og áhorfandinn veltist um af hlátri. Að sjálfsögðu eru nokkrir brandarar sem ganga aðeins of langt í ruglinu, enda er þetta Will Ferrell mynd, og það er líka alltaf hann sem fær heiðurinn af því að fara yfir strikið. Handritið er hálfþunnt eins og gefur að skilja, en það er allt í lagi því myndin er það fyndin allar þessar 105 mínútur. Sem betur fer er lítið um drama, oft falla menn í þá gildru að reyna að gera eitthvað drama úr svona myndum en þessi mynd reynir ekki að vera neitt annað en hún er; heimskuleg grínmynd sem lætur áhorfandann hlæja.
Niðurstaða: The Other Guys er sprenghlægileg mynd ef áhorfandinn leyfir sér að njóta vitleysunnar. Hún rétt svo sleppur inn sem sumarmynd og fær titilinn „fyndnasta mynd sumarsins 2010“.





Category: Grín



Massagóð mynd… mér finnst reyndar steve coogan gera lítið fyrir myndina, miðað við hvað hann getur gert ! Will Ferrell er skelfilega fyndinn … þó að mér finnist hann reyna aðeins of mikið… en samt innan marka… góð mynd!
Gott að heyra að þér líkaði myndin Stebbi!
Hvernig fannst þér Michael Keaton?