The Imaginarium of Doctor Parnassus (2009)

| 25. Apr, 2010 | 0 Comments

Leikstjóri: Terry Gilliam
Aðalhlutverk: Heath Ledger, Christopher Plummer, Lily Cole, Andrew Garfield, Verne Troyer og Jude Law, Colin Farrell og Johnny Depp fara með smáhlutverk.

Myndin fjallar um fjölleikahús Doctor Parnassus sem er þúsund ára gamall og sýnir hér og þar um landið. Áhorfendur fá tækifæri til þess að lauma sér inní ímyndunarheim Doctor Parnassus með því að ganga inn um töfraspegil. Lítill sem enginn áhugi er fyrir sýningum hans og hann ásamt þremur aðstoðarkokkum sínum fær lítið fyrir sinn snúð. Fyrir tilviljun rekst hópurinn á Tony sem slæst í för með hópnum og honum tekst að vekja áhuga fólks á sýningum með persónutöfrum sínum en þrátt fyrir það virðist allt fara niðurá við með tilkomu Tonys sem hefur ýmislegt óhreint í pokahorninu.

Mér finnst erfitt að segja stuttlega frá söguþræðinum því ég í rauninni veit ég ekkert um hvað myndin er. Hún er ekki um neitt og það gerist ekkert í henni. Vitandi það að þetta var Terry Gilliam mynd bjóst ég við furðulegri mynd en ég bjóst ekki alveg við þessu. Terry Gilliam er reynslubolti mikill, einn af þessum stóru í faginu, en mjög umdeildur. Persónulega fíla ég hann ekki, myndirnar hans eru ekki alveg minn tebolli þó að það sé margt sniðugt í þeim. Hann á ýmislegt sameiginlegt með Tim Burton en Terry Gilliam á það til að missa sig í rugl.

Í heildina séð er Doctor Parnassus alveg hundleiðinleg mynd. Sagan er bara hreint út sagt leiðinleg og persónurnar mjög óáhugaverðar sem gerði það að verkum að ég missti fljótt áhugann. Ég þraukaði þó og það borgaði sig upp að vissu marki því skemmtilegustu partar myndarinnar er þegar Tony fer inn í ímyndunarheim Parnassus. Ýktur heimur þar sem allt virðist vera mögulegt, mikil litadýrð og furðuhlutir, heimur þar sem allt er öðruvísi. Í hvert skipti sem Tony fór í gegnum spegilinn breyttist hann sem mér fannst alveg brilliant en það má reyndar þakka snjöllum breytingum á handritinu eftir dauða Heath Ledgers sem leikur Tony. Hann fer þrisvar í gegnum spegilinn sem þýðir þrjár útlitsbreytingar í hvert skipti og eru þessar breytingar túlkaðar af stórstjörnunum Johnny Depp, Jude Law og Colin Farrell. Myndin fékk skemmtilegra yfirbragð fyrir vikið. Þetta eru því miður einu jákvæðu punktarnir sem ég sé við myndina ,fyrir utan Heath Ledger sem í rauninni heldur uppi myndinni með ansi fjörugum leik. Þetta var hans síðasta hlutverk og hugsa ég með hryllingi til þess að þessi mynd skuli vera hans síðasta en ekki The Dark Knight.

Niðurstaða: The Imaginarium of Doctor Parnassus er hvorki fugl né fiskur, mynd sem er ekki um neitt og heldur áhorfandanum alveg gríðarlega óspenntum að klára myndina. Myndin fær plús fyrir frumlega sögu og skemmtilegan furðuheim Doctor Parnassus. Og Heath Ledger sem fær reyndar ekki úr miklu að moða.

★½☆☆☆

Tags: , , , , , , , ,

Category: Ævintýri

Leave a Reply

Switch to our mobile site