The A-Team (2010)

| 19. Jun, 2010 | 3 Comments

Á dögum Víetnamstríðsins var starfandi fjögurra manna sérdeild innan hersins að nafni The A-Team. Þeir tóku að sér störf sem engir aðrir þorðu að sinna, eða vildu ekki. Eitt starfið fól í sér að ná í prentplötur að dollara seðlum, sem stolið hafði verið. Þegar þeir skila plötunum kemur í ljós að þeir voru leiddir í gildru og fangelsaðir. Þeir flýja og leggja upp með eitt: að hreinsa mannorð sitt. Söguþráðurinn er samt algjört aukaatriði, hann er bara til þess að tengja saman öll hasaratriðin!

Af lýsingunni að dæma gæti þetta verið hvaða meðalgóða hasarmynd sem er. Joe Carnahan, leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, fellur ekki í þá gryfju. Hann nálgast myndina á hátt sem fleiri mættu tileinka sér; með fáránlega absúrd aðstæðum og ennþá fyndnum lausnum á þeim. Þessi mynd er í stíl við Shoot ‘Em Up og Crank-myndirnar en hún gengur þó ekki jafn langt og þær í fáránleika. Þessi kemur fersk inn í kvikmyndasumarið og er fyrsta mynd sumarsins sem allir ættu að fíla (annað en Prince of Persia og Sex and the City 2). Hún hefur hasar, húmor og Bradley Cooper það oft beran að ofan að þetta gæti verið Matthew McConaughey-mynd, sem sagt eitthvað fyrir bæði kynin. Joe Carnahan er ekki mikill reynslubolti, Smokin‘ Aces og Narc stærstu myndirnar hans fram að þessu, en hann hefur ótrúlega góð tök á kvikmyndamiðlinum; frásagnartæknin er góð, handritið miklu þéttara en við má búast og leikstjórn virkilega fagmannleg þar sem hann tekur myndina ekki of alvarlega.

Hann hefur þó góða leikara sem passa sem flís við rass. Fjórmenningarnir í The A-Team smella álíka vel saman og Bastarðarnir í Inglorious Basterds. Liam Neeson veit upp á hár hvað hann er að gera, það tók hann tíma að komast á toppinn í Hollywood en það fer honum vel að vera þar! Bradley Cooper er fáránlega skemmtilegur leikari (ef þú ert ósammála hefurðu augljóslega ekki séð The Hangover). Þetta er góð frammistaða hjá honum í myndinni og hann er að mínu mati skemmtilegasti karakterinn, hann er hæfilega ruglaður en fer aldrei „over the top“. Quinton Jackson er óreyndur leikari. Hann er þekktastur sem keppandi í einhverri bardagaíþrótt en hann stendur sig ágætlega í myndinni. Sharlto Copley úr District 9 er veikasti hlekkur leikaraúrvalsins. Það er kannski ekki við hann að sakast, hann leikur karakter sem ég skil að fari auðveldlega í taugarnar á mörgum, en hann slapp fyrir horn hjá mér. Það er allt ofgert varðandi karakterinn og leikurinn fylgir því að sjálfsögðu. Flestir aðrir eru í minni aukahlutverkum; Patrick Wilson og Jessicu Biel ber helst að nefna.

Allt sem The A-Team leggur upp með að gera heppnast en það er fyrst og fremst að skemmta áhorfandanum. Allt annað mætir afgangi.

★★★★½

Tags: , , , , , ,

Category: Hasar

Comments (3)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Gauji says:

    What??? Sharlto Copley veikastur? Hann stal öllum sínum atriðum!!!!

  2. Fór á hana í gær. GEÐVEIK!

Leave a Reply

Switch to our mobile site