Salt (2010)

| 13. Aug, 2010 | 1 Comment

Þegar rússneskur njósnari gengur inn í höfuðstöðvar CIA með mikilvægar upplýsingar er útsendarinn Evelyn Salt látin yfirheyra hann. Hann segist vita að forseti Rússlands verði ráðinn af dögunum í opinberri heimsókn til Bandaríkjanna. Jafnframt hefur hann vitneskju um það hver morðinginn verði: Evelyn Salt. Dauðhrædd um öryggi eiginmanns síns leggur hún hugsunarlaust á flótta til að tryggja öryggi hans og sanna sakleysi sitt.

Salt grípur þig á fyrstu mínútu og heldur þér í heilar 100 mínútur. Hún er spennandi frá byrjun og fram undir blálokin. Hasarinn er keyrður í botn og oftast heppnast það vel þó að það verði yfirdrifið í fáein skipti og hittir illa í mark. Að flestu leyti er myndin þó mjög njótanleg. Handritið er nokkuð gott en höfundurinn Kurt Wimmer hefði mátt vera vandvirkari við að skrifa söguna. Persóna Salt er lítið kynnt áður en manni er steypt í hasarinn og hefði ítarlegri kynning í byrjun gert myndinni gott. Í staðinn eru hlutar lífs hennar smám saman útskýrðir með skelfilegum endurlitum (e. flashback) sem passa engan veginn inn í myndina.
Aðrir atburðin líkt og hversu fljótt allir snúast gegn Salt, eftir að rússnesku njósnarinn ásakar hana um að vera gagnnjósnari, gerast allt of fljótt og eru ótrúverðugir. Gallar í sögunni trufla meira en að Salt skuli geta slegist við og sigrað (mér sýndist hún fá á sig eitt högg í myndinni) fjölda sérþjálfaðra lögreglumanna ein síns liðs. Það verður að taka svoleiðis hlutum þegar farið er á svona mynd. Salt er samt bara svo úrræðagóð á flóttanum að það er ekki annað hægt en að njóta hennar.

Plottið er ekki mjög þétt en það er nógu gott. Það er oft fyrirsjáanlegt en margar flækjur sjá um að halda manni við efnið og efast um sakleysi Salt. Myndin hefur þó margt gott fram að færa þrátt fyrir nokkra veika punkta.

Angelina Jolie stendur sig vel sem fyrsta kvenkyns hasarhetjan. (Hafa nokkrar aðrar konur leikið sambærileg hlutverk í stærri Hollywood mynd?) Margir hafa bent á líkindi myndarinnar við Bourne þríleikinn sem er ein besta kvikmyndaþrenna sem fagið hefur alið af sér. Vissulega eru persónurnar líkar sem og uppbygging kynningar á þeim; leynd varðandi fortíð sem er uppljóstrað markvisst eftir því sem við á. Stíll myndanna er ekki sambærilegur og líkindin ná ekki lengra en til persónanna. Salt á þó ekkert  í Bourne en það er ekki við Salt að sakast, fáir standast samanburðinn. Aðrir helstu leikarar; Liev Schreiber, Chiwetel Ejiofor og Daniel Olbrychski standa sig allir með prýði.
Phillip Noyce er með mikla reynslu af leikstjórn, og þó hann hafi gert nokkrar  stórar myndir er hann ekki mikill gæðastimpill á myndir. Hér sýnir hann líklega sína bestu takta og ætti að svíkja fáa. Kvikmyndatakan er spiluð nokkuð örugglega og er m.a. bílaeltingaleikur vel skotinn.

Salt er, þrátt fyrir heldur neikvæðan dóm, skemmtileg mynd sem tókst vel upp.

★★★½☆

Tags: , , , , ,

Category: Hasar, Spennu

Comments (1)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. Arnar G says:

    Gæti ekki verið meira ósammála með ágæti þessarar myndar!

    Fannst hún alveg hrikaleg. Fyrstalagi er hún 15 árum á eftir sínum samtímamyndum. Fannst þessi mynd í sama gæðaflokki og face-off… Sem var jú að vissu leiti fín ræma þegar hún kom út. Þessi hefði sennilega verið ágæt á þeim tíma.

    Skelfilega hallærislegur söguþráður sem er illa framsettur í leiðinlegri atburðarrás.

    Bardagaatriðin buðu ekki uppá neitt nýtt… eins og myndin væri að taka saman öll helstu atriði úr “hasar B-myndum” og setja á filmu. Atriðin voru ekki einusinni vel útsett eða eftirminnileg. Angelina Jolie er bara þarna til að fá fólk á myndina. Hún býður áhorfandanum ekki einusinni uppá kynþokka.

    Plottið er svo fyrirsjáanlegt að ég ætlaði hreinlega ekki að trúa mínum eigin augum þegar ég sá endann..

    Ég gekk frekar sáttur út úr kvikmyndasalnum yfir að þurfa aldrei að sjá þetta drasl aftur… svipað og síðasti skóladagurinn fyrir sumarfrí.

Leave a Reply

Switch to our mobile site