Rudo Y Cursi (2008)
Aðalhlutverk: Gael Garcia Bernal, Diego Luna, Guillermo Francella, Adriana Paz.
Bræðurnir Rudo (Diego Luna) og Cursi (Gael Garcia) búa við skort í smáþorpi í Mexíkó þar sem þeir vinna á bananaakri. Þeir eru fastir í aumkunarverðum hjólförum fátæktarinnar því lítið er um almennilega vinnu á svæðinu. Rudo er fjölskyldumaður, hann á konu og tvö börn og er spilafíkill sem er vanur að tapa sparifé fjölskyldunnar í þeirri von að vinna stórar upphæðir í veðmálum eða póker. Cursi er maður einsamall, hann lifir þann draum að flytja til Bandaríkjanna til að slá í gegn sem söngvari. Bræðurnir eiga sér sameiginlegt áhugamál og það er að spila knattspyrnu og þykja liðlegir sem knattspyrnumenn, Rudo sem markvörður og Cursi sem framherji.
Dag einn hleypur á snærið hjá þeim þegar óvænt verður á vegi þeirra „njósnari“ sem uppgötvar knattspyrnuhæfileika þeirra. Áður en um langt líður eru þeir báðir komnir í atvinnumennskuna í Mexíkóborg. Eftir snubbótta byrjun slær Cursi í gegn, hann er fædd markamaskína og verður nýjasta fótboltastjarnan í landinu. Rudo fylgir svo fast á eftir, hann lokar gjörsamlega markinu fyrir lið sitt og verður fljótt umtalaður þar sem hann á stutt í land með að ná eftirsóttu markmannsmeti. Cursi lifir eins og kóngur, byrjar með glæsilegri sjónvarpsstjörnu í Mexíkó og baðar sig í sviðsljósinu, gefur út lag og myndband þegar stjarna hans rís hvað hæst. Rudo aftur á móti saknar fjölskyldu sinnar og reynir hvað hann getur til að fá konu sína til að flytja til stórborgarinnar.
Glanslíf bræðranna varir þó ekki lengi. Cursi missir taktinn og hættir að geta skorað, tónlistarferill hans nær engu flugi og kærastan hættir með honum í kjölfarið. Rudi sekkur enn dýpra í heim spilafíkninnar og ánetjast fíkniefnum sem hefur alvarlegar afleiðingar fyrir hann. Í lokaleik leiktíðarinnar beinast því öll athyglin á einvígi bræðranna – mun Cursi skora hjá bróður sínum og halda áfram að spila með þeim bestu eða mun Rudo halda hreinu og slá markametið þrátt fyrir hótanir um að hann verði að sjá til þess að lið sitt tapar leiknum?
Rudo Y Cursi er mexíkósk/bandarísk framleiðsla, skrifuð og leikstýrð af Mexíkóanum Carlos Cuarón sem er hvað þekktastur fyrir að hafa skrifað Y tu mama también ásamt bróður sínum, hinum þekkta Alfonso Cuarón sem var jafnframt leikstjóri þeirrar myndar. Carlos er reynslulítill leikstjóri, Rudo Y Cursi er hans fyrsta mynd í fullri lengd en hefur verið þeim mun virkari í handritagerð.
Ég vissi ekkert um þessa mynd áður en ég horfði á hana. Ég vissi að Gael Garcia Bernal var í henni og var því alveg ágætlega bjartsýnn á fína skemmtun því mér hefur fundist hann fínn leikari hingað til. Það má segja að ég var feginn að hafa ekkert neinar kröfur eða væntingar til myndarinnar því þá hefði ég líklega orðið fyrir vonbrigðum.
Rudo Y Cursi er ágætis frumraun hjá Carlos Cuarón. Hann hefur ágætis vald á öllum sviðum kvikmyndagerðinnar þó að hann hafi mátt gera mun betur á mörgum sviðum. Leikarahópurinn er að mínu mati sterkasti hluti myndarinnar. Hann er alveg pottþéttur, þar sameinast þeir á ný þeir Diego Luna og Gael Garcia Bernal en árið 2001 léku þeir saman sitt hvort aðalhlutverkið í Y tu mama también. Þeirra samvinna í þessari mynd er einn stærsti kostur myndarinnar. Þeir virka mjög vel saman en það má líka þakka vel skrifaðri persónusköpun. Handritið er þokkalegt, sagan fannst mér heldur leiðigjörn á köflum og frekar óspennandi, hún var lengi að komast á skrið og myndin átti erfitt með að halda mér spenntum. En þegar myndin komst á flug þá var hún fínasta skemmtun. Handritið er vel skrifað þrátt fyrir ýmsa annmarka og leikararnir smella saman eins og flís við rass í hlutverkum sínum.
Kvikmyndataka fannst mér á köflum pínulítið truflandi, myndavélin var aldrei nógu stöðug og hún var heldur aldrei nógu mikið á ferð til að geta kallast handheld, hún var svona mitt á milli og það komu kaflar þar sem ég lét það fara í taugarnar á mér.
Umhverfi myndarinnar er mjög sterkt. Þú færð á tilfinninguna strax að bræðurnir hafa það ekkert alltof gott ásamt hinum bæjarbúunum. Það virðist allt snúast um að sjá fyrir sér og sínum. Fjölskyldan er það sem heldur lífinu í fólkinu. Trúverðugt umhverfið hjálpar mikið til að myndin virkaði. Þú sérð gríðarlega fátækt í Mexíkó og þú sérð líka hina hliðina; auð.
Aðaláhersla myndarinnar er á bræðrunum og hvernig þeir höndla „nýja lífið“ í Mexíkóborg og svo þegar síga fer á ógæfuhliðina. Eins og gefur að skilja þegar menn lenda í svipuðum aðstæðum og Rudo og Cursi, þ.e. að komast til frægðar og verða ríkir á skömmum tíma, að þá vilja menn misstíga sig ansi hressilega. Menn verða örvæntingarfullir, reyna hvað þeir geta til að viðhalda skini stjörnu sinnar en örvænting skilar sér yfirleitt á þverveginn. Þessi hluti myndarinnar fannst mér vel úr garði gerður, mjög trúverðugur. Væntumþykja bræðranna og togstreitan á milli þeirra er einstaklega vel skrifuð og hvernig þeir þróast með hverju hliðarskrefi.
Uppgjör bræðranna í lokin fannst mér missa marks, uppbygging myndarinnar hafði verið þann á veg að ég bjóst við meiri dramatík og meiri spennu. Það vantaði eitthvað upp á endinn til að ég geti talist fyllilega saddur.
Niðurstaða: Rudo Y Cursi er ágætis skemmtun. Handritið er í heildina gott, leikaraval til fyrirmyndar og frammistöður aðalleikaranna tveggja heldur myndinni alveg uppi. Fín frumraun hjá Carlos Cuarón, hlakka til að sjá meira af honum í framtíðinni.





Category: Drama



