Opnunarteiti Bíódaga

| 16. Apr, 2010 | 0 Comments

Skemmtilegt andrúmsloft myndaðist í gær í Regnboganum þegar opnunarteiti Bíódaga var haldið. Fyrirkomulagið var með þeim hætti að fjórar myndir af sýningunni yrðu sýndar, ein í hverjum sal bíósins, en enginn vissi hvaða myndir það voru. Mikið af fólki var mætt og spjallaði ég lítillega við Ísleif, aðstandanda Bíódaga, og óskaði honum til hamingju með hátíðina. Allar myndirnar þarna langar mig að sjá (nema kannski Das Weisse Band eftir að hafa verið gabbaður á Funny Games U.S. á fölskum forsendum, en sami leikstjóri er að myndunum).

Ég var því spenntur þegar ég gekk inn í Sal 1, eftir miklar vangaveltur um hvaða myndir yrðu sýndar. Ég lenti á Un prophète og tel mig hafa verið nokkuð heppinn með það. A.m.k. tóku áhorfendur Trash Humpers ekki jafn vel í þá mynd og áhorfendur Un prophète, því flestir gengu út af henni! Un prophète var voðalega sérstök. Róleg á köflum en hélt manni alveg á tánum aðra. Gagnrýni er allavega væntanleg.

Eftir að myndunum lauk var partý frammi þar sem fólki var boðið upp á bjór og vín. Skemmtileg stemmning myndaðist þá þegar fólk ræddi saman um myndirnar sem það hafði verið á. Myndirnar sem voru sýndar voru áðurtaldar Un prophète og Trash Humpers og svo The Cove og Crazy Heart.

Þetta var frábært byrjunarkvöld á því sem kemur til með að vera frábær hátíð.

Tags:

Category: Fréttir

Leave a Reply

Switch to our mobile site