Drama

Grín

Spennu

Fréttir

Hasar

Home » Spennu

Lola rennt (1998)

Submitted by Magnús Michelsen on 19. Jul, 2010 – 12:26No Comment

Þegar smákrimminn Manni gleymir 100.000 þýskum mörkum um borð í lest, kemst hann í hann krappan þar sem yfirmaður hans á peningana, sem er umsvifamikill demantasmyglari, og er fljótur að grípa til ofbeldis. Manni hringir í kærustuna sína, Lolu, sem hefur 20 mínútur til að útvega 100.000 mörk og koma þeim til hans, annars ræni hann verslun eða verði líklega drepinn.

Myndin sýnir þessar 20 mínútur ferðalag Lolu frá íbúðinni og til Manni, þrisvar sinnum. Það verður þó ekki leiðigjarnt að sjá þetta aftur, því atburðarásin breytist í hvert skipti. Þetta er virkilega skemmtileg hugmynd, að sýna hvernig hlutirnir þróast í mismunandi áttir geri maður þetta en ekki hitt. Þessar þrjár mismunandi útgáfur eru misskemmtilegar en allar vel útfærðar.

Leikstjórinn, Tom Tykwer, notar ýmis stílbrögð sem almennt mætti flokka sem óheðfbundin – að minnsta kosti notkunina á þeim sem bregða útaf vananum í miðað við Hollywood. Hann fer úr því að nota leikara og kvikmyndatökuvélar í það að nota teiknimynd til að túlka framvinduna. Kvikmyndataka og klippingar eru oft á tíðum óvanalegar, svo ég tali nú ekki um tónlistina í myndinni. Þessar aðferðir Toms virkuðu ekki á mig og beinlínis trufluðu mig í fyrstu útgáfu sögunnar þó ég hafi getað horft fram hjá því í seinni tvö skiptin.

Þrátt fyrir að myndin sé skemmtileg áhorfs fór ýmislegt í taugarnar á mér við hana. Svo dæmi séu nefnd eru það fyrrnefndar tilraunir leikstjórans ásamt ýmsu í handriti, hún Lola getu öskrað svo hátt að kristalsglös og speglar brotna auk þess hve óstjórnlega heppin hún er.

Moritz Bleibtreu, ein helsta kvikmyndastjarna Þýskalands, leikur Manni og Franka Potente leikur Lolu. Leikurinn í myndinni er fínn en almennt reyndi lítið á þau.

★★½☆☆

Einkunn lesenda: 1 stjarna2 stjörnur3 stjörnur4 stjörnur5 stjörnur Engin hefur gefið einkunn
Loading ... Loading ...

Leave a comment!

Add your comment below, or trackback from your own site. You can also subscribe to these comments via RSS.

Be nice. Keep it clean. Stay on topic. No spam.

You can use these tags:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

This is a Gravatar-enabled weblog. To get your own globally-recognized-avatar, please register at Gravatar.