Íslensk vídjóleiga á netinu
Núna í ágúst-mánuði opnaði, að ég held, fyrsta íslenska vídjóleigan á netinu undir nafninu filma.is. Núna er hægt að horfa á kvikmyndir og þætti löglega á netinu með íslenskum texta. Hægt er að leigja eða kaupa efni á síðunni. Einnig er boðið upp á ókeypis efni, m.a. hina góðu The Alibi (smelltu til að horfa). Ekki er hægt að niðurhala þáttum og kvikmyndum í tölvuna sína, heldur einungis horfa á þetta í streymi.
BÍÓFilman hvetur alla til að skrá sig á síðuna og sökkva sér í einhverja af gæðamyndunum, enda er þetta frábært framtak.
Category: Fréttir




