Drama

Grín

Spennu

Fréttir

Hasar

Home » Featured, Grín

Grown Ups (2010)

Submitted by Stefán Claessen on 30. Jun, 2010 – 16:12No Comment

Þrjátíu árum eftir að hafa unnið titil með skólaliðinu sínu í körfubolta, koma þeir saman félagarnir Lenny, Eric, Kurt, Marcus og Rob, þegar maðurinn sem þjálfaði og hvatti þá til dáða, deyr. Eftir jarðarförina ákveða þeir að rifja upp góða tíma og eyða saman einni helgi með fjölskyldum sínum í stórum skála þar sem þeir eyddu einmitt sigurkvöldinu þrjátíu árum fyrr. Allir með sín vandamál og siði, læra þeir eitthvað nýtt um fjölskyldur sínar og hvors annars um leið og þeir rifja upp nokkrar gamlar minningar.

Hér er á ferðinni nokkuð stór mynd með mörgum stórum nöfnum á borð við Adam Sandler, Kevin James, Rob Schneider, David Spade og Chris Rock auk fleiri þekktra aukaleikara. Með öll þessi frægu nöfn úr heimi uppistandara og grínista bjóst ég við góðri afþreyingu og að hláturtaugarnar myndu nú fá eitthvað að gera en vonir mínar breyttust fljótt í matröð. Grown Ups er ein arfaslök mynd sem veldur gríðarlegum vonbrigðum. Það er alltaf einn gaur í öllum vinahópum sem heldur að hann sé fyndinn en er það í rauninni ekki, í þessari mynd eru fimm svoleiðis gaurar og það er hreinlega fimm of mikið. Til að skilja nákvæmlega hvað ég er að tala um, þá má segja að Disney og BET (en fyrir þá sem vita ekki hvað BET er, þá er það Black Entertainment Television) myndu eignast barn saman, nema það er afmyndað og mjög heimskt.

Dennis Dugan er leikstjóri myndarinnar og hann á sér langa sögu með Adam Sandler sem nær aftur til Happy Gilmore. Samstarf þeirra hefur oftar en ekki verið yfir meðallagi gott en hérna runnu þeir allharkalega á rassinn. Handritið er skrifað af Adam Sandler en það mætti halda að Sandler hafi verið mjög þunnur þegar hann skrifaði þessa mynd eða í alvarlegu þunglyndiskasti.

Ég var líka virkilega vonsvikinn með leikarana því bæði Sandler og Kevin James voru skelfilega lélegir í myndinni. Chris Rock var mjög slappur, ég fékk á tilfinniguna að hann skammaðist sín fyrir að leika í myndinni. Mig grunar að Sandler hafi grátbeðið Chris Rock um að leika í myndinni, og að Rock hafi ákveðið að gera vini sínum Adam Sandler greiða með því að samþykkja. Rob Schneider og David Spade voru í aukahlutverki en þeir voru báðir að leika sína venjulega karaktera, sem sagt Schneider í nýaldarbullinu og Spade hinn týpíski kvennabósi. Húmorinn í þessari mynd er fastur í fimmta bekk og hann kemst ekkert ofar en það. Það er rosalega mikið um klisjur og steríótýpur, sem er reyndar venjulegt í Sandler mynd, nema í þetta skipti er handritið svo illa skrifað að engin karakter gat blómstrað eða notið sín því myndin var alveg skelfilega ófyndin. Margir brandararnir ganga t.d. út á að gera grín að holdafari persónu Kevin James og það er orðinn frekar þreyttur brandari.

Grown Ups er svo skelfilega léleg mynd að það ætti að vera aldurslágmark til að sjá hana. Myndin er mjög metnaðarlítil og stórstjörnurnar gera lítið til að leggja sitt af mörkum fyrir utan veru sína, sem í þessu tilfelli gerir ekkert fyrir myndina. Klárlega nokkrar Razzie tilnefningar á þessa mynd. Ég vona fyrir hönd allra þeirra sem komu að myndinni að þetta sé botninn á ferli þeirra.

★☆☆☆☆


Einkunn lesenda: 1 stjarna2 stjörnur3 stjörnur4 stjörnur5 stjörnur Engin hefur gefið einkunn
Loading ... Loading ...

Leave a comment!

Add your comment below, or trackback from your own site. You can also subscribe to these comments via RSS.

Be nice. Keep it clean. Stay on topic. No spam.

You can use these tags:
<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

This is a Gravatar-enabled weblog. To get your own globally-recognized-avatar, please register at Gravatar.