Fantastic Mr. Fox (2009)
Mr. Fox er alræmdur kjúklingaþjófur sem fær þær fréttir í miðju ráni að konan hans, Mrs. Fox sé ólétt. Þarf hann þá að lofa eiginkonu sinni að hætta í núverandi atvinnu og fara í eitthvað almennilegra. Hoppum nú tvö ár fram í tímann, 12 refa-ár og sjáum Mr. Fox í lélegri vinnu sem blaðamaður, með erfiðan ungling og konu sem sættir sig bara við aðstæðurnar. Eftir að hafa litið aðeins í kringum sig lendir Mr. Fox í smá “mid-life-crisis” og ákveður að kaupa sér nýtt hús sem er á yfirborðinu, í stað þess að búa í holu. Tekur hann eftir því að þrír hættulegustu bændur landsins búa rétt fyrir framan húsið og ákveður þá að taka eitt síðasta ránið, sem verður auðvitað þrískipt. Eftir ránin þrjú taka bændurnir til sinna ráða og ákveða að grafa Mr. Fox og öll önnur dýr úr heimilum sínum, byrjar þar svo stríð milli bænda og dýra.
Myndin er byggð á metsölubók eftir Roald Dahl, sem ég hef ekki lesið, en grunar mig að hún sé ekki jafn fyndin og myndin. Húmorinn í myndinni er alveg stórkostlegur og hló ég í gegnum alla myndina. Ef litið er yfir samtölin, þá eru ekkert frábærir brandarar í þeim en myndin er svo lúmskt fyndin bara í líkamstjáningu brúðanna og rödd leikaranna að það er alveg ótrúlegt. Myndin er tekin í stop-motion og bætir það enn meira við þennan lúmska húmor sem er falinn þarna. Einnig eru mannveru brúðurnar smíðaðar þannig að andlitið á þeim er alltaf mjög kaldhæðnisleg í framan.
Tökustíll myndarinnar er mjög flottur og einstakur, minnir oft á gömlu Mario leikina, þar sem maður sér allt á hlið. Einnig þar sem myndin er tekin í „stop-motion“ nær leikstjórinn að leika sér aðeins með myndavélina og kemur út ein besta stop-motion sem sést hefur. Talsetningin er alveg hreint stórkostleg og erum við með gæða leikara eins og George Clooney, Meryl Streep, Bill Murray, Michael Gambon, Willem Dafoe og Owen Wilson. Standa þeir sig allir með prýði en George Clooney og Michael Gambon standa helst upp. Gambon leikur illa bóndann Franklin Bean, sem er alveg stórkostlega hlægilegur karakter.
Krakterarnir eru frábærir. Einn sem stendur mest upp úr er Kristofferson (Eric Chase Anderson) sem er frændi Fox fjölskyldunnar og er hjá þeim vegna slæmri geðheilsu föður síns. Þessi karakter er alveg snilldarlega skrifaður og yndislega fyndinn. Samböndin á milli föðurs og sonar, Mr. Fox og Ash (Jason Schwartzman), eru vandræðaleg á góðan hátt. Ash reynir stanslaust að ná athygli föður síns meðan Mr. Fox hugsar ekki um annað en hversu Kristoffersen er frábær í öllu sem hann gerir.
Wes Anderson leikstýrir myndinni en hann hefur leikstýrt t.d. The Royal Teenenbaums, The Life Aquatic with Steve Zissou og The Darjeeling Limited. Þessi sérstaki og kaldhæðni húmor hans skín fram í þessari mynd, eins og ég var búinn að taka fram hérna fyrr. Hann tekur þátt í hverju einasta stigi myndarinnar (upptöku, handriti, leik) og stendur sig alveg rosalega vel. Mér fannst Teenenbaums fyndin en var ekki alveg að fíla The Life Aquatic og á enn eftir að sjá The Darjeeling Limited. Hann á að minnsta kosti heiðurinn af bestu teiknimynd ársins 2009.
Í heild er Fantastic Mr.Fox alveg frábær mynd sem blandar saman rosalega súrum húmor við yndislega sögu. Myndin var tilnefnd til Óskarsverðlauna fyrir bestu teiknimynd og vonaði ég innilega að hún tæki þann titil en það gekk ekki eftir.





© Sigurjón Ingi Hilmarsson
Category: Teiknimynd



Var rétt í þessu að horfa á Fantastic Mr. Fox og er alveg hjartanlega sammála þessari gagnrýni. Það tók mig svona fimm mínútur að meðtaka stílinn og húmorinn en um leið og ég “opnaðist” að þá hætti ég ekki að hlæja og brosa.
Ég fíla myndirnar hans Wes Anderson, hef séð Rushmore, Tenenbaums og Darjeeling og þó að þessar myndir séu frábærar, þá er Fantastic Mr. Fox eitthvað allt annað. Hún er eiginlega bara hreinræktuð snilld.
Frábær gagnrýni, mátt endilega koma með fleiri.