Das Experiment (2001)
Leikstjóri: Oliver Hirschbie
gel
Aðalhlutverk: Moritz Bleibtreu, Christian Berkel, Oliver Stokowski, Justus Von Dohnanyi, Timo Dierkes.
Lengd: 115 mín
Stanford fangelsistilraunin frá árinu 1971 er innblástur Das Experiment. Þá voru 24 hvítir karlmenn, andlega stöðugir og líkamlega heilbrigðir, valdir til að taka þátt í tilraun sem fólst í sér að um helmingur þátttakenda áttu að leika fangelsisverði og hinn helmingurinn fanga. Smíðað var gervifangelsi og „verðirnir“ voru í sérstökum búningum með sólgleraugu og kylfur á meðan „fangarnir“ voru í óþægilegum hvítum samfestingum með númeri sem var saumað á samfestingana. Reglurnar voru einfaldar: Verðirnir áttu að halda uppi aga og reglu án þess þó að beita fanganna líkamlegu ofbeldi ef þeir óhlýðnuðust og fangarnir svöruðu eingöngu sínum númerum, en ekki sínum eigin nöfnum. Tilraunin átti að standa yfir í 14 daga en var hætt eftir 6 daga því tilraunin fór algjörlega úr böndunum þar sem fangaverðirnir tóku yfir alla stjórn, þeir höguðu sér eftir eigin hentugleika til þess að stjórna föngunum eða berja niður uppreisn þeirra. Tilraunin gekk meira að segja svo langt að rannsakendurnir sjálfir misstu stjórn á aðstæðum.
Myndin fjallar sem sagt um þessa tilraun og fylgir henni í meginatriðum vel eftir, en eins og vill gerast með sannsögulegar myndir þá tók handritshöfundurinn sér skáldaleyfi hér og þar til að krydda söguna. Þjóðverjar eru lunknir kvikmyndagerðarmenn og leikstjórinn Oliver Hirschbiegel kann sitt fag vel. Das Experiment var hans fyrsta alvöru kvikmynd (hann hafði leikstýrt fjölmörgum sjónvarspmyndum og þáttum) og má segja að frumraun hans hafi lofað góðu. Efniviðurinn er líka sérlega áhugaverður og gott efni í kvikmynd. Handritið er nokkuð þétt en myndin átti það til að detta niður í miðjumoð þegar ákveðin hliðarsaga er sögð, sem er algjörlega tilgangslaus fyrir framvinduna. Sagan er vel upp byggð, rannsóknin er vel útskýrð og bakgrunnur þátttakenda stuttlega sögð svo maður fær að kynnast persónunum áður en tilraunin hefst. Það er sterk undirliggjandi spenna fyrsta klukkutímann þar sem maður fær að sjá hvernig fangaverðirnir færa sig smátt og smátt upp á skaftið gagnvart föngunum sem gera þó fangavörðunum lífið leitt með því að sýna lítinn sem engan samstarfsvilja.
Tónlistin er notuð óspart til að gefa í skyn að „eitthvað“ mun gerast, mjög týpískt hryllingsmyndastef nema það er notað á mjög smekklegan hátt hérna. Og þegar þetta „eitthvað“ gerist, þá fer myndin á svo svakalegt flug að maður veit ekki hvort maður á að standa eða sitja. Myndin er hörkuspennandi og kraftmikil, reyndar svo spennandi og óhugnanleg um tíma að neglur voru nagaðar, og ég sem naga ekki einu sinni neglurnar.
Leikhópurinn telur um 25 leikara og fá þeir flestir góðan tíma á skjánum en þó er það Moritz Bleibtreu sem fer með stærsta hlutverkið sem krefjandi, kjaftfori fanginn og gerir það vel. Moritz er þekktur leikari í Þýskalandi og reynslubolti mikill, því miður hef ég ekki séð nema tvær myndir með honum. Sá sem stelur hins vegar senunni er sadista fangavörðurinn Justus Von Dohnanyi, ekki beint leikari sem maður býst við að geti verið svona hrikalega andstyggilegur því hann er með svo vinalegt andlit. Þess vegna var þetta hlutverk svo ánægjulega óvænt, sérstaklega af því að hann gerði það svo vel.
Ég má til með að nefna líka kvikmyndatökuna, sem er alveg til fyrirmyndar. Mörg skemmtileg skot frá ýmsum áhugaverðum sjónarhornum sem lyfta myndinni uppá hærra plan.
Niðurstaða: Das Experiment er ögrandi kvikmynd sem reynir á áhorfandann. Áhugavert efni sem sýnir hversu illgjörn og ógeðsleg mannsskepnan getur verið. Ein allra besta evrópska mynd sem ég hef nokkurn tímann séð og fær hiklaust mín meðmæli.





Category: Hrollvekja, Spennu



Mjög fín mynd. Honum tókst að láta mér illa á hárréttum stöðum.
Der Untergang, sem hann gerði nokkrum árum seinna, er þó töluvert betri. Eiginlega ótrúlegt að sami leikstjórinn sé á bak við myndirnar tvær enda gjörólíkar.