Cop Out (2010)
Jimmy og Paul eru löggur í New York borg og þegar þeim mistekst að uppræta sendil fyrir stóran fíkniefnahring er þeim vikið frá starfi tímabundið launalaust á meðan málið er klárað. Paul stendur frammi fyrir því að geta ekki borgað draumabrúðkaup dóttur sinnar og getur ekki ímyndað sér að leyfa núverandi eiginmanni, fyrrverandi konu sinnar að kaupa hamingju dóttur hans. Hann ákveður að selja verðmætan hlut til safnara en er síðan rændur þegar hann er að láta meta hann. Með ekkert annað á dagskránni ákveður hann að taka Jimmy með sér og uppræta þjófinn. Ekki vissi hann að þjófurinn var laus þráður í stórri peysu og endar það með ósköpum.
Leikstjóri myndarinnar er enginn annar en Kevin Smith og er hann þekktur fyrir bæði leik og verk sín bakvið myndavélina. Hann er til að mynda maðurinn á bakvið myndir líkt og Zack and Miri Make a Porno, Jersey Girl, Dogma, Chasing Amy og Clerks. Hann hefur tekið að sér að leika hin ýmsu aukahlutverk en hann er sennilega mest þekktur sem Silent Bob úr Jay og Silent Bob tvíeykinu. Smith er þekktur fyrir einstakan húmor en honum er best hægt að lýsa sem lúða með klósetthúmor í þriðja bekk. Þetta er algjörlega hinn týpíski hasshaus og sýnir það sig í myndum hans. Að mínu mati er hann ekki verðlaunaleikstjóri, en andskotinn getur hann fengið mig til að hlæja.
Í myndinni leikur Bruce Willis, Jimmy og kemur svakalega á „óvart“ að hann hafi tekið að sér eitt lögguhlutverkið í viðbót (Willis er þekktastur fyrir hlutverk sitt í Die Hard fjórleiknum sem John McClane). Tracy Morgan er hinsvegar rísandi stórstjarna úr heimi sjónvarps en hann leikur núna í verðlauna grín þættinum 30 Rock og fer þar með hlutverk Tracy Jordan og er ekki lítið góður. Í myndinni hefur Bruce Willis ekki mikið upp á að bjóða, ég veit ekki alveg hvort grínmyndir séu fyrir hann. Hann var hinsvegar bráðfyndinn í The Whole Nine Yards en hann var einhvernveginn ekki að gera sig í þessari mynd. Tracy Morgan bar myndina og var mjög fyndinn. Ég get nú ekki sagt að hann sé fjölhæfur leikari en hann er snillingur sem Tracy Jordan karakterinn sem er í rauninni bara hann sjálfur. Með húmorinn hans Smith og kjánaleikinn hans Morgans þá var útkoman mjög skemmtileg og get ég sagt að myndin kom mér skemmtilega á óvart. Ég bjóst við því að þetta væri bara mynd með tveimur stórnöfnum og engum söguþræði sem væri gerð til að þéna pening í kvikmyndahúsunum en mér fannst kjánaskapurinn mjög skemmtilegur.
Kevin Pollack og Adam Brody fara með aukahlutverk í myndinni sem rannsóknarlögregluteymið Hunsaker og Mangold, en það fór ekki mikið fyrir þeim og get ég ekki sagt að þeir gerðu mikið fyrir myndina. Er nokkuð hlutlaus þegar það kom að þeim þeir voru ekki lélegir og ekki algjörlega óþarfir en gerðu samt voðalega lítið fyrir myndina. Guillermo Díaz fór með hlutverk Poh Boy, sem var eiturlyfjakóngur með hafnarbolta áráttu og var sá karakter mjög illa skrifaður, illa leikinn og hreint útsagt ótrúverðugur. Blandan á ensku og spænsku í sömu samtölunum passaði engan veginn við í myndinni og tel ég mistök að hafa ráðið Diaz í þetta hlutverk. Sean William Scott fór með hlutverk Dave en hann er þjófur sem er með nokkrar skrúfur lausar í hausnum, Scott leikur karakter sem er bæði pirrandi og fyndin. Scott fer vel með hlutverk Dave og sé ég ekki fyrir mér einhvern annan geta gert betur.
Myndatakan var algjör brandari og ekki góð. Það var mikið um skot sem gerðu ekkert fyrir myndina, voru mjög kjánaleg og sýndu fram á það að Kevin Smith er ekki tilbúinn í hasarmyndir. Tónlistin í myndinni var hrikaleg, það mætti halda að Smith hefði klárað peninginn við tökur á myndinni og ráðið mann sem semur tónlist fyrir „low budget“ klámmyndir. Tónlistin var léleg og passaði engan vegin við myndina.
Í heildina er þetta ágætis mynd og alveg fín afþreying, en það er að mestu leyti Tracy Morgan að þakka. Hann ber myndina og bjargar Kevin Smith frá algjörri hörmung. Ég held að myndin muni ekki ná langt og tel ég það ólíklegt að ég muni horfa á hana aftur.









