BÍÓFilman kynnir…

| 15. Apr, 2010 | 0 Comments

Ritstjórn BÍÓFilmunnar hefur hugsað mikið um það hvernig síðan getur notið meiri sérstöðu, þar sem við getum fullnýtt formið á síðunni. Ein af hugmyndunum var að hafa þemavikur eða -mánuð. BÍÓFilman hrindir því hér til framkvæmdar fyrsta þemanu: Bíódagar Græna Ljóssins 2010. Þar munum við einungis skrifa um þær myndir sem til sýningar eru á Bíódögum. Að okkar mati er þetta frábær byrjunarreitur fyrir komandi þemu, enda er hátíðina með frábært úrval mynda til sýninga.

Búast má við fyrstu skrifum frá hátíðinni strax á morgun, en í kvöld hefst opnunarteiti hennar í Regnboganum og á morgun „almennar sýningar“.

Hér má sjá trailera og lýsingar að hverri mynd og hér er dagskráin fyrir Bíódaga. Dagskráin er óákveðin frá 30. apríl – 6. maí og þá má búast við að myndunum fækki verulega. Das Weisse Band er sýnd daglega í Háskólabíói, eingöngu dagana 23. – 29. apríl.

Tags:

Category: Fréttir

Leave a Reply

Switch to our mobile site