BÍÓFilman gefur Die Welle á DVD!
Nú þegar þýskum þemadögum er að ljúka hjá okkur hér á BÍÓFilmunni, viljum við gefa tveimur heppnum lesendum sitthvort eintakið af þýsku gæðamyndinni Die Welle frá árinu 2008 sem einmitt var tekin fyrir á síðunni þann 3. júlí og fékk þrjár og hálfa stjörnu.
Þetta verður getraunaleikur með þremur laufléttum spurningum og verður eingöngu dregið úr réttum svörum. Svör sendist á maggidan@biofilman.is eða robert@biofilman.is. Þess má geta að svörin við spurningunum má finna á síðunni undir þeim gagnrýnum sem á við. Þannig að nú er um að gera að fletta upp á svörunum og senda til okkar. Frestur til að skila inn svörum er til laugardagsins 31. júlí og sunnudaginn 1. ágúst verður dregið úr réttum svörum og tveir heppnir fá því Die Welle. Njótið vel.
1) Á hvaða bandarísku tilraun byggist Das Experiment?
2) Í hvaða mynd er sama sagan sögð þrisvar sinnum, með jafnmörgum mismunandi afleiðingum?
3) Þýski leikarinn Daniel Brühl, sem lék í tveimur myndum á þýskum þemadögum BÍÓFilmunnar, hefur leikið í íslenskri kvikmynd. Hvaða mynd?
1. ágúst, kl. 10. Leiknum er lokið. Vinningshafar verða dregnir út í dag og haft verður samband við þá í gegnum tölvupóst. Við þökkum öllum sem þeim tóku þátt.
Category: Fréttir


