Bíódögum 2010 er lokið
Bíódögum 2010 lauk í gærkvöldi, eftir þrjár vikur og fullt af góðum myndum. Almennt fengu myndirnar jákvæða dóma hjá okkur. Við sáum og dæmdum 14 myndir af 26, og var einkunnadreifingin svona: Tvær myndir fengu fjórar og hálfa stjörnu. Fjórar myndir fengu fjórar stjörnur. Þrjár fengu þrjár og hálfa stjörnu. Tvær myndir fengu þrjár stjörnur. Ein mynd fékk tvær og hálfa stjörnu. Ein mynd fékk tvær stjörnur og ein mynd fékk eina og hálfa stjörnu. Athugið að við dæmdum ekki Trash Humpers. Hér er hægt að sjá allar fréttir og gagnrýnir BÍÓFilmunnar tengdar hátíðinni.
Hátíðin heppnaðist vel og myndirnar greinilega eitthvað sem bíóþyrstir Íslendingar vildu sjá, en tæplega 10 þúsund gestir sóttu hátíðina! Crazy Heart var mest sótta myndin, en næstar voru Un Prophète og The Imaginarium of Doctor Parnassus. Crazy Heart var jafnframt kosin besta myndin að mati áhorfanda og einnig netverja á vísi.is.
Bestu og verstu myndir að mati ritnefndar:
Magnús: Bestu myndir voru Hachiko og Black Dynamite. Versta mynd var Nowhere Boy.
Róbert: Besta mynd er jafntefli milli Hachiko og The Young Victoria, allavega kom Victoria mest á óvart. Versta mynd er Doctor Parnassus by far, ein leiðinlegasta mynd sem ég hef nokkurn tímann séð.
Stefán: Besta mynd var Triage og versta Fantastic Mr. Fox.
Ákveðið var að sýna áfram þrettán vinsælustu myndirnar af hátíðinni:
Crazy Heart
Fantastic Mr. Fox
Food, Inc
The Imaginarium of Doctor Parnassus
The Last Station
The Living Matrix
The Messenger
Moon
Nowhere Boy
Ondine
Un prophète
Rudo Y Cursi
Trash Humpers
Category: Fréttir




