Bíódagar: Trailerar og umfjallanir

| 15. Apr, 2010 | 1 Comment

Þann 16. apríl næstkomandi hefst rosaleg kvikmyndaveisla á Íslandi í boði Græna Ljóssins. Kvikmyndahátíðin, sem nefnist Bíódagar og er árlegur viðburður, mun skarta 24 myndum hvaðanæva úr heiminum. Græna Ljósið tekur undir sig Regnbogann í heilar þrjár vikur þar sem sýnt verður ekkert annað en þessar 24 myndir! Úrvalið er vægast sagt geggjað en að sjálfsögðu mun Filman fjalla um hátíðina og myndirnar frá A – Ö.

Hér eru allar myndirnar:

Black Dynamite

Bráðfyndin mynd sem gerir grín að gömlu blaxploitation myndunum er á sama tíma sjálf ein slík.
YouTube Preview Image

Burma VJ

Ungir hugrakkir borgarar í Burma leggja líf sitt í í við gerð þessarar mögnuðu heimildarmyndar sem var tilnefnd til Óskarsverðlauna.YouTube Preview Image

Crazy Heart

Jeff Bridges og Maggie Gyllenhall fara á kostum í mynd sem hefur rakað til sín verðlaunum undanfarið.
YouTube Preview Image

Dialog

Einstök heimildarmynd um tvo unga vini frá Póllandi sem ferðast um Ísland, heimsækja leikskóla, taka myndir og leita að draumi.YouTube Preview Image

Fantastic Mr. Fox

Snillingurinn Wes Anderson kemur hér með stórskemmtilega brúðumynd sem var tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna.YouTube Preview Image

Food, Inc

Sláandi, stórkemmtileg og einkar fróðleg heimildarmynd um matvælavinnslu samtímans og áhrif hennar á líf okkar og heilsu.YouTube Preview Image

Hachiko: A Dog’s Story

Lasse Hallström og Richard Gere gera hér einstaklega hjartnæma mynd byggða á sannri sögu um vináttu manns og hunds.YouTube Preview Image

The Cove

Sérþjálfaðir og hátæknivæddir umhverfissinnar afhjúpa ljótan sannleik í vík nokkurri í Japan. Vann Óskarinn í ár sem heilmdarmynd ársins.
YouTube Preview Image

The End of the Line

Sláandi heimildarmynd um áhrif ofveiði samtímans á höf heimsins. Hér er sýnt fram á að á næstu 50 árum gætu fiskistofnarnir þurrkast út.
YouTube Preview Image

The Imaginarium of Doctor Parnassus

Ferðaleikhús gefur áhorfendum sínum mun meira en þeir áttu von á. Terry Gilliam leikstýrir Heath Ledger í sinnu síðustu mynd.
YouTube Preview Image

The Last Station

Vönduð mynd með fjölda stórleikara um Leo Tolstoy og baráttu hans við að finna jafnvægið milli frægðar og ríkidæmis annars vegar og andúðar hans á efnisgæðum hins vegar.
YouTube Preview Image

The Living Matrix

Hér eru afhjúpaðar nýstárlegar hugmyndir um þann flókna vef ólíkra þátta sem ákvarða heilsu okkar.
YouTube Preview Image

The Messenger

Kröftug mynd um hermennina sem hafa það hlutverk að færa ættingjum fallinna hermanna slæmu fréttirnar. Woody Harrelson var tilnefndur til Óskarsverðlauna.
YouTube Preview Image

Moon

Sam Rockwell leikur Sam Bell, sem hefur verið aleinn og yfirgefinn í geimstöð nokkurri í hátt í þrjú ár og það er farið að taka sinn toll.
YouTube Preview Image

Nowhere Boy

Bráðskemmtileg og hjartnæm bresk mynd um æsku John Lennonn. Tilnefnd til 4 Bafta verðlauna.
YouTube Preview Image

Ondine

Colin Farrell leikur írskan sjómann sem bjargar konu á reki í sjónum. Hún kallar sig Ondine og virðist minnislaus. Neil Jordan leikstýrir.YouTube Preview Image

Un Prophéte

Ungur arabi er sendur í franskt fangelsi þar sem hann kemst fljótt til mikilla valda.
YouTube Preview Image

Rudo y Cursi

Teymið á bak við Y tu mamá también sameinast í stórskemmtilegri mynd um bræður sem berjast á knattspyrnuvellinum.YouTube Preview Image

Trash Humpers

Harmony Korine er mættur aftur, nú með mynd um gamalt fólks sem riðlast á ruslagámum, eitthvað sem allir hafa beðið eftir, er það ekki?
YouTube Preview Image

Triage

Eiginkona stríðsfréttaljósmyndara reynir að komast að því af hverju eiginmaður hennar sneri heim frá síðasta verkefni án kollega síns.
YouTube Preview Image

Until the Light Takes Us

Heimildarmynd um hugmyndafræði og ansi sjokkerandi sögu svartþungarokkksins (black metal) í Noregi.
YouTube Preview Image

Videocracy

Sláandi heimildarmynd um Silvio Berlusconi, fjölmiðlaveldi hans og áhrif á ítalska menningu.
YouTube Preview Image

Das Weisse Band

Meistari Michael Haneke kemur hér með svart hvítt meistarastykki sem tilnefnd hefur verið til tveggja Óskarsverðlauna.YouTube Preview Image

The Young Victoria

Vönduð mynd framleidd af Martin Scorsese um fyrstu ár Victoríu sem drottning en hún var krýnd 18 ára.
YouTube Preview Image

Tags:

Category: Fréttir, Kvikmyndir

Comments (1)

Trackback URL | Comments RSS Feed

  1. maggidan says:

    Úff! Ég hlakka svo til!

Leave a Reply

Switch to our mobile site